Halaleikhópurinn frumsýndi Hrakhóla 12 persónudrifna satíru með alvarlegum undirtón þ. 27. apríl síðastlinn. Meðlimir leikhópsins sköpuðu saman verkið undir leiðsögn Rúnars Guðbrandssonar leikstjóra og Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur sviðshöfundar. Síðasta sýning á Hrakhólum 12 verður sunnudaginn 10. maí, kl. 17.00.
Hrakhólar 12 fjallar um íbúa fjölbýlishúss, ættingja þeirra og aðra óboðna gesti sem rápa inn og út, í óþökk Söndru umsjónarmanns fasteigna. Þegar Helena listakona flytur inn á móður sína tímabundið, bankar fortíðin upp á sem og nágrannar sem vantar ýmist egg eða leiðsögn í lífinu. Helena hefur lifað, upplifað, brunnið út og risið upp. Hún er eins og fuglinn Fönix, nema með betri húmor en verri svefn. Mun sveitastjórnin á Þórðarhöfn samþykka hugmynd hennar eða ætla þau aðmissa ferðamennina úr greipum sér? Hvað gerist þegar Sandra tilkynnir á húsfundi um ástand hússins og hvað verður um Ástu sem er alltaf að bíða en fær engan frið fyrir Hallgerði stundakennara með jógadýnu sem hefur lifað af fjögur krabbamein, ADHD og samband við fótboltamann. Nú eða Borghildi hjá Neytendasamtökunum sem vill hjálpa Sjonna bróður sínum, en hann vill enga hjálp og er í nöp við Silju sem er svo aumingjagóð og hleypir öllum inn, einnig trúboðanum sem vill vísa íbúum leiðina heim, í gegnum dimman dal, óttist ei þótt vasaljósið sé bilað.
Sýningin sem er í húsnæði Halaleikhópsins að Hátúni 12 er um 2 tíma á lengd með hléi. Miðaverð er 3.500 kr. og miðasala er hjá Halaleikhópnum í síma 897-5007 eða netfanginu halaleikhopurinn@gmail.com eða á Tix.is.


