Nýstofnaður Leiktækniskóli Magnúsar Jónssonar og Þorsteins Bachmann mun standa fyrir leiklistarnámskeiðum í vetur. Fyrsta námskeið hefst þriðjudaginn 6. sept. og stendur til og með 11. okt. Á námsskeiðinu munu þeir Magnús og Þorsteinn miðla af eigin reynslu en styðjast við klassíka aðferðafræði Stanislavskis, Mikhael Chekhov, Lee Strasbergs o.fl. í bland við nýja strauma og stefnur. Einnig munu þeir sækja nokkuð í brunn Helga Skúlasonar leikara sem rak eigin Leiklistarskóla um árabil en þar lágu leiðir Magnúsar og Þorsteins saman fyrst. Magnús og Þorsteinn voru samferða í gegnum Leiklistarskóla Íslands og útskrifuðust þaðan vorið 1991. Báðir með áratuga reynslu af leikhúsi, kvikmyndum og sjónvarpi.Kennt er á þriðjudagskvöldum og er námskeiðið haldið í húsnæði Dansverkstæðisins á Skúlagötu 28 (efstu hæð KEX hostel).

Námsskeiðið kostar kr. 38.000 sem greiðist að fullu við skráningu. 18. ára aldurstakmark.

Á námskeiðinu verður farið í:
–  Undirbúning leikarans
–  Túlkun
–  Textagreiningu
–  Kvikmyndaleik
–  Þjálfun líkama og raddar
–  Hugleiðslu og slökun
o.m.fl

Um Magnús:
Magnús hefur leikið jöfnum höndum síðan hann útskrifaðist árið 1991. Hann var meðlimur Gus Gus frá 1994 til 1999. Gaf út einherjadisk árið 2000 og starfar með hljómsveitinni BB&BLAKE um þessar mundir. Hann hefur talsett bíómyndir, auglýsingar, haldið málverkasýningar og tónleika svo nokkuð sé nefnt. Meðal helstu leikhlutverka eru Siðameistarann í Kabarett í Óperunni. Logi Traustason í sjónvarpsþáttunum Réttur og Frank N. Furter í Rocky Horror á síðasta ári.

Um Þorstein:
Þorsteinn hefur leikið vel á þriðja tug hlutverka í leikhúsi og hátt í 20 hlutverk fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Hann hefur einnig fengist töluvert við leikstjórn og var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar um skeið. Þorsteinn hefur haldið fjölda námskeiða í leiklist og kennt bæði við Leiklistarskóla Íslands og Kvikmyndaskólann. Meðal helstu hlutverka Þorsteins eru Steinn Elliði í Vefaranum mikla frá Kasmír, Gestur, fréttastjóri í Pressu og hlutverk Ara í kvikmyndinni Eldfjall sem frumsýnd verður á Íslandi í haust.

Skráning og frekari fyrirspurnir á leiktaekniskolinn@gmail.com

{mos_fb_discuss:3}