Year: 2011

Verkstæði jólasveinanna í Mosfellsbæ

Það er sannkallað jólafjör í jólasýningu Leikfélags Mosfellssveitar, en sunnudaginn 20. nóvember var barnaleikritið Verkstæði jólasveinanna frumsýnt í Bæjarleikhúsinu. Leikstjóri er Stefán Bjarnarson. Í sýningunni fylgjast áhorfendur með undirbúningi jólanna hjá jólasveinunum á verkstæði jólasveinanna. Verkstæði jólasveinanna kom út árið 1973 og er upphaflega útvarpsleikrit eftir Thorbjörn Egner en þær Agnes Þorkelsdóttir Wild og María Guðmundsdóttir stílfærðu og aðlöguðu fyrir svið. Leikritið er fullt af gleði og söng og var uppselt á fyrstu þrjár sýningarnar. Næstu sýningar verða sunnudagana 11. og 18. desember kl. 14. Miðapantanir eru í síma 566 7788 og miðaverð aðeins 1000 krónur....

Sjá meira

SL-hópar með 217 þúsund áhorfendur á síðasta leikári

Heildaráhorfendafjöldi sjálfstæðra dans, og atvinnuleikahópa á síðasta leikári var rúmlega 217 þúsund áhorfendur innanlands og erlendis en alls voru sýndar 104 uppfærslur á vegum þessara hópa á þessu tímabili. Það er 20% auking milli ára sem verður að teljast framúrskarandi árangur á þeim miklu samdráttar tímum sem eiga sér stað í öðrum starfsgreinum á Íslandi. Þar af sýndu sjálfstæðu sviðslistahóparnir 192 sinnum fyrir 65.300 áhorfendur erlendis en það er um 30% af heildaráhorfendafjölda sjálfstæðu hópanna. Sjálfstæðir hópar hafa verið í gríðarlegri útrás undanfarin ár með sýningar sínar og ljóst að orðsporið fer víða og eftirspurn eftir sjálfstætt starfandi sviðslistafólki...

Sjá meira

Ein aukasýning á Saknað

Eftir frábærar viðtökur á Saknað eftir Jón Gunnar Þórðarson hafa Leikfélag Akureyrar og Silfurtungið ákveðið að bæta við  einni aukasýningu á verkinu laugardaginn 3.desember klukkan 19.00. 10 ár eru liðin frá hvarfi Önnu Taylor. Fjölskyldan lifir enn í þeirri von að einn daginn muni Anna koma heim. Líf þeirra stendur í stað, en skyndilega kemur vísbending; Anna Taylor gæti verið á lífi, en hver tók hana og hvar hún er niðurkomin veit enginn, nema sá seki og Anna. Boðið verður upp á umræður með höfundi og leikurum eftir sýninguna á laugardaginn. Verkið fjallar um fjölskyldu Önnu, leitina og tilraunir...

Sjá meira

Borgarbörn frumsýna Óværuenglana í Iðnó

Þann 1. desember frumsýna Borgarbörn nýtt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna í Iðnó. Jólaleikrit Borgarbarna þessi jól ber nafnið Óværuenglarnir. Er þetta sjötta árið í röð sem Borgarbörn setja um jólasýningu. Höfundur og leikstjóri er Erla Ruth Harðardóttir. Sýningin er um klukkustund í flutningi. Óværuenglarnir fjallar um englana Hrein, Engilfríði og Bjart sem standa sig engan veginn í Englaskóla Himnaveldis. Eftir ítrekaðar kvartanir kennara skólans, tekur Serafía æðsti engill til sinna ráða. Fær hún leyfi fra Alföðurnum, til að senda þessa óþekktarengla niður til jarðar. Þar eiga þau að reyna að koma vitinu fyrir jarðarbúa, sem eru eins og svo...

Sjá meira

Jólastemmningin er í Bæjarleikhúsinu

Verkstæði jólasveinannaLeikfélag MosfellsbæjarLeikstjóri: Stefán Bjarnarson Það er ekki laust við að ég hafi verið spenntur fyrir frumsýningu Leikfélag Mosfellsbæjar á Verkstæði jólasveinanna í Bæjarleikhúsinu. Alinn upp með þessu verki var ég að minnsta kosti örugglega spenntari en fimm ára dóttir mín, sem var alveg steinhissa á því að jólasveinarnir væru með verkstæði í Mosfellbæ.Hér á landi var þetta verk fyrst flutt af leikurum Þjóðleikhússins í Ríkisútvarpinu áður en það var þrykkt í vínyl á 33 snúninga LP plötu frá SG hljómplötum árið 1973. Eins og hjá svo mörgum öðrum var þessi plata ómissandi hluti af mínum æskujólum og spiluð...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert