Steinunn Knútsdóttir nýr deildarforseti leiklistar- og dansdeildar
Steinunn Knútsdóttir hefur verið ráðin í stöðu deildarforseta leiklistar- og dansdeildar. Hún tekur við af Ragnheiði Skúladóttur, sem hefur stýrt deildinni allt frá stofnun hennar haustið 2000. Steinunn hefur að baki fjölþættan feril, bæði í námi og starfi. Hún lauk bakkalárnámi í guðfræði við Háskóla Íslands, stundaði leiklistarnám í Árósum, og lauk síðar meistaranámi í leiklistarfræðum og leikstjórn frá De Montfort háskólanum í Leicester, Englandi. Hún er einnig með diploma í leikstjórn frá Scandinavisk Centrum för Utvikling af Teater. Steinunn hefur unnið með ýmsum leikhúsum og sviðslistahópum í Danmörku, Englandi og á Íslandi, bæði sem leikari, höfundur og...
Sjá meira


