Year: 2011

Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig

Leikhópurinn Fjöður í hatti sýnir leikritið Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig á Norðurpólnum. Dr. Flosi og Vanja frænka hans eru bestu vinir. Flosi er doktor í hlæju- og kitluvísindum og safnar hlátri í krukkur. Hann dreymir um að verða heimsfrægur snillingur og komast í heimsmetabók Gunnars. Einn daginn býður hann Vönju frænku í heimsókn til að sýna henni nýjustu tilraunina. Hann hefur nefnilega fundið leið til að kitla sjálfan sig! Sprenghlægileg og hádramatískt atvik eiga sér stað í þessari örlagaríku heimsókn Vönju frænku til Flosa. Ósýnilegur köttur skýtur upp kollinum, frisbídiskar fljúga um og Dr. Flosi þarf að...

Sjá meira

Fyrst tökum við Manhattan ..

Sviðslistaþing LSI í Tjarnarbíói, sunnudaginn 4. september kl 11.00 – haldið í tengslum við sviðslistahátíðina Lókal. Fyrirlesari er Åsa Edgren, stjórnandi Loco World. Í fyrirlestri sínum mun Åsa kynna fyrir íslenska sviðslistasamfélaginu sameiginlegt norrænt átak í Norður Ameríku sem ætlað er að auka sýnileika norræna sviðslista. Hún mun fjalla um verkefni umboðsskrifstofunnar Loco World frá árinu 2004, samstarf stofunnar við listamenn og greina frá því hvernig markviss uppbygging hefur skilað listafólki auknum tekjum og orðstír. Hvernig verða draumar að veruleika? Af hverju er innri hvöt listamannsins forsenda árangurs? Hvers vegna skiptir tímastjórnun, skipulag og samningstækni máli þegar ætlunin er...

Sjá meira

RÚV hlýtur tilnefningu fyrir DJÚPIÐ

Útvarpsleikhúsið – RÚV hlýtur tilnefningu fyrir DJÚPIÐ eftir Jón Atla Jónasson til evrópsku ljósvakaverðlaunanna, PRIX-EUROPA 2011, í flokki útvarpsleikrita. Hátíðin er nú haldin í 25. skipti í Berlín dagana 22.-29. október næstkomandi. Keppt er um besta efnið í Evrópu bæði í útvarpi og sjónvarpi, í hinum ýmsu flokkum. Alls voru 159 útvarpsverk frá 35 löndum send í keppnina sem útvarpsefni ársins. DJÚPIÐ keppir um verðlaunin sem besta útvarpsverkið í flokki stakra útvarpsleikrita, en eingöngu voru valin 22 verk í þá keppni, af þeim sem send voru inn.Síðan mun fjölskipuð dómnefnd vinna frá morgni til kvölds frá sunnudeginum 23. október...

Sjá meira

Þjóðleikhúsið byrjar leikárið með stæl

Leikárið í Þjóðleikhúsinu er hafið af fullum krafti. Æfingar standa yfir á margvíslegum verkefnum víðsvegar um húsið. Kynningarbæklingi Þjóðleikhússins var dreift í öll hús á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri en hægt er að kynna sér leiksýningar vetrarins hér. Sala á leikhúskortum Þjóðleikhússins er nú í fullum gangi. Enn fleiri kort hafa selst en á sama tíma og í fyrra, en það var metár í kortasölu Þjóðleikhússins. Stefnir því allt í að nýtt met verði slegið.  Síðasta leikár var aðsóknarmesta leikár Þjóðleikhússins í áraraðir, og von er á að ekkert lát verði á aðsókn í leikhúsið í vetur, enda leikárið...

Sjá meira

Fræði og framkvæmd á Lókal

Í vor útskrifuðust tíu nemendur af brautinni fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Brautin leitast við að skapa grundvöll til nýsköpunar og auka fjölbreytni í íslensku sviðlistaumhverfi. Þremur nemendum var boðið að sýna lokaverkefni sýn á leiklistarhátíðinni Lókal. Svörður fyrir sálina er söngleikur eftir Aude Busson sem fjallar um tengsl einstaklingsins við „heima” og hvötina að skapa sér þjóð og þjóðarímynd. Ættjarðarástgef ekkert fyrir svoleiðis fínt kjaftæðisagði sjómaðurinn ungiog hellti í glasið…(Vilborg Dagbjartsdóttir) Sýningin verður sýnd kl 14.00, sunnudaginn 4. september í Þjóðmenningarhúsinu. Dagskrá um eldingar eftir Ragnheiði Hörpu er sýning sem rannsakar hið stórfenglega og hið hversdagslega. Dulúðinn...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert