Hin málsnjalla Praxagóra fer fyrir flokki kvenna sem er búinn að fá nóg af óstjórn karlmanna í Aþenu. Konurnar dulbúa sig sem karlmenn, fjölmenna á þing Aþeninga og fá það samþykkt að konum skuli falin öll völd. Og hverju vilja þær svo breyta? Þótt það sé búið að finna upp lýðræðið hrannast upp vandamál sem þetta samfélag þarf að leysa. Spilltir stjórnmálamenn, ójöfnuður, fákeppni, stríðsæsingar, okurlán og skuldug heimili. Rányrkja á auðlindum, skuldugur ríkissjóður og fullveldinu er ógnað af bandalögum og sambandssinnum.
Og hvað gera konurnar?
Leikarar eru Atli Rafn Sigurðarson, Baldur Trausti Hreinsson, Edda Arnljótsdóttir, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Harpa Arnardóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Oddur Júlíusson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, Þorleifur Einarsson og Þorsteinn Bachmann
Síðasta uppsetning Benedikts Erlingssonar í Þjóðleikhúsinu var rómuð sýning á Íslandsklukkunni, en hann á að baki fjölda leiksýninga og hefur unnið til fjölmargra verðlauna og viðurkenninga.