Leikfélag Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýnir leikritið Stútungasögu föstudaginn 23. mars kl. 20:00. Leikritið Stútungasaga er eftir Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason, Sævar Sigurgeirsson og Hjördísi Hjartardóttur og er í leikstjórn Stefáns Benedikts Vilhelmssonar. Sýningar fara fram í sal MB.
Leikritið byggir á gamansaman hátt á fornsögunum, einkanlega Sturlungu. Bændur berjast og brenna bæi hvers annars, gifta syni sína og dætur eftir hentugleikum og skreppa í heimsóknir til konungshjóna Noregs inn á milli bardaga, bruna og brúðkaupa. Frillulíf á Íslandi er einnig skoðað vandlega og skáldkona ein skrifar „söguna“ eftir því sem hún fær kálfsskinn til, en bóndi hennar er orðinn langþreyttur á því að gripir hans nái aldrei fullum vexti.
Föstudagur 23. mars. FRUMSÝNING – kl.20:00
Sunnudagur 25. mars – 2. sýning – kl.16:00
Sunnudagur 25.mars – 3. sýning – kl.20:00
Fimmtudagur 29. mars 4. sýning – kl.20:00
Föstudagur 30. mars 5. sýning – kl. 20:00
Laugardagur 31. mars Lokasýning – kl.20:00
Miðapantanir eru í síma 8696968 (Alda) og í síma 8655081 (Eyrún). Einnig er hægt að panta miða á netfanginu leikfelag@menntaborg.is
{mos_fb_discuss:2}