Leikhóurinn Lab-Loki sýnir um þessar mundir Stóru börnin, sem er nýtt íslenskt leikverk eftir Lilju Sigurðardóttur. Verkið fjallar á margræðan hátt um gildi ástarinnar og varpar fram þeirri spurningu hvort hægt sé að setja á hana verðmiða. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson og með hlutverk fara Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein og Stefán Hallur Stefánsson.

Stóru börnin eftir Lilju Sigurðardóttur fjallar á margræðan hátt um gildi ástarinnar. Þó verkið hafi nokkuð hefðbundna leikhús-umgjörð er umfjöllunarefnið nýstárlegt og varpar fram spurningum sem vel eiga heima í nútímanum. Er ástin einungis einhvers virði ef hún er ókeypis? Missir hún gildi sitt ef borgað er fyrir hana? Hættir hún þá að vera alvöru ást? Og síðast en ekki síst: Er sá sem selur ástina frjáls í því að falbjóða? Í Stóru börnunum er hulinn heimur infantílista notaður til að varpa ljósi á fremur jarðbundin og hversdagsleg viðfangsefni sem flestir þekkja: samband foreldra og barna, æskuörin sem allir bera, flóttann frá fortíðinni og ástina í mörgum mögulegum myndum. Stóru börnin er margslungið og líflegt leikverk, nýstárlegt og ögrandi. Sviðsverk sem hreyfir við tilfinningunum jafnt sem hugsuninni.

Við fylgjumst með Mömmu, konu sem býður móðurást sína til sölu og viðskiptavinum hennar, stóru börnunum, sem hvert og eitt koma til Mömmu með ólíkt veganesti úr lífinu sem oft hefur farið um þau óblíðum höndum. Miðaldra smiðurinn Kristján kemur í leit að ást sem hann hefur lengi þráð. Ást sem hann er tilbúinn til að borga fyrir. Móðurást. Mamma elskar hann og annast fyrir ákveðna upphæð – rétt eins og hin stóru börnin sín. Stóru börnin sem þurfa svo mikið, krefjast svo mikils, þroskast svo hratt. Mamma sinnir þörfum þeirra, nærir þau, þrífur þau, huggar þau og veitir þeim ráðningu þegar þau eru óþekk.

Þar sem kynferðislegur undirtónn er í verkinu telst það ekki við hæfi barna.

Miðasala á midi.is