Fátækir bændur í ónefndu þorpi hafa lengi þurft að búa við ofríki ræningja sem ræna uppskeru þeirra og konum og brenna þorpið ef þeir eru óánægðir með ránsfenginn. Að lokum er bændunum nóg boðið, þeir ákveða að leita að samúræjum sem tilbúnir eru að fórna lífi sínu fyrir þurrt fleti og skál af hrísgrjónum á dag. Þeim tekst að finna sjö hugrakka samúræja en er það nóg til að verjast fjölmennum hópi ræningja?
Sýningar verða:
Föstudaginn 5. júlí – Frumsýning
Laugardaginn 6. júlí
Sunnudaginn 7. júlí
Mánudaginn 8. júlí – Lokasýning
Ekki verður um fleiri sýningar að ræða.
Sjö samúræjar er fimmta verkið sem Leikfélagið Sýnir setur upp í Elliðaárdal en áður hefur það sýnt þar Draum á Jónsmessunótt eftir Shakespeare (2003), Máfinn eftir Chekhov (2006), Allir komu þeir aftur eftir Dorfman (2010) og síðasta sumar sýndi félagið þar frumsamda verkið Gangverkin. Einnig hafa sýningar félagsins farið fram víðs vegar um land, t.d. í Heiðmörk, Skorradal, Hrísey, Öskjuhlíð, Svarfaðardal, Kjarnaskógi og á Hveravöllum svo eitthvað sé nefnt.
Sýningar hefjast kl. 20. Miðaverð er 2.000 kr en 1.000 kr. fyrir börn. Engar miðapantanir, bara mæta.