Leikhópurinn Silfurtunglið frumsýnir föstudaginn 23. leikverkið Ég var einu sinni frægur þar sem stórleikararnir Þráinn Karlsson, Gestur Einar og Aðalsteinn Bergdal leika sig sjálfa, gamla, bitra, geðilla leikara sem halda að þeir séu virtir, dáðir og sívinsælir. Sýningin gerist á Kanarí og fjallar um ferð eldri borgara frá Akureyri til Kanarí sem fer algjörlega úr böndunum. Í sýninguna fléttast leikhústónlist úr þeim verkum sem hafa staðið upp úr á 50 ára leiklistarferli.

Leikararnir nota sögur úr eigin reynslu, Gestur Einar þolir ekki Gogga úr Stellu í Orlofi, Alli Bergdal þolir ekki Skralla trúð og Þráinn Karlsson þolir ekki þegar fólk segir við hann; mikið líturðu vel út! Skemmtunin er 70 mínútur að lengd, setið er til borðs og barinn er opinn. Sýningin er því tilvalin fyrir vinnuhópa, vinahópa, saumaklúbba og stórfjölskyldur og sem sprenghlægilegur fordrykkur fyrir jólahlaðborð. Eða bara fyrir fólkið af götinni sem vill koma og skemmta sér.

Miðasla er á midi.is