Námsskeiðið kostar kr. 38.000 sem greiðist að fullu við skráningu. 18. ára aldurstakmark.
Á námskeiðinu verður farið í:
– Undirbúning leikarans
– Túlkun
– Textagreiningu
– Kvikmyndaleik
– Þjálfun líkama og raddar
– Hugleiðslu og slökun
o.m.fl
Um Magnús:
Magnús hefur leikið jöfnum höndum síðan hann útskrifaðist árið 1991. Hann var meðlimur Gus Gus frá 1994 til 1999. Gaf út einherjadisk árið 2000 og starfar með hljómsveitinni BB&BLAKE um þessar mundir. Hann hefur talsett bíómyndir, auglýsingar, haldið málverkasýningar og tónleika svo nokkuð sé nefnt. Meðal helstu leikhlutverka eru Siðameistarann í Kabarett í Óperunni. Logi Traustason í sjónvarpsþáttunum Réttur og Frank N. Furter í Rocky Horror á síðasta ári.
Um Þorstein:
Þorsteinn hefur leikið vel á þriðja tug hlutverka í leikhúsi og hátt í 20 hlutverk fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Hann hefur einnig fengist töluvert við leikstjórn og var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar um skeið. Þorsteinn hefur haldið fjölda námskeiða í leiklist og kennt bæði við Leiklistarskóla Íslands og Kvikmyndaskólann. Meðal helstu hlutverka Þorsteins eru Steinn Elliði í Vefaranum mikla frá Kasmír, Gestur, fréttastjóri í Pressu og hlutverk Ara í kvikmyndinni Eldfjall sem frumsýnd verður á Íslandi í haust.
Skráning og frekari fyrirspurnir á leiktaekniskolinn@gmail.com
{mos_fb_discuss:3}