Í kvöld, föstudagskvöldið 21. júlí frumsýnir Leikfélag Fljótsdalshéraðs hið bráðskemmtilega leikrit Miðsumarnæturdraumar eftir Guðjón Sigvaldason og Auðhumlu. Guðjón er jafnframt leiksstjóri. Í kvöld, föstudagskvöldið 21. júlí frumsýnir Leikfélag Fljótsdalshéraðs hið bráðskemmtilega leikrit Miðsumarnæturdraumar eftir Guðjón Sigvaldason og Auðhumlu. Guðjón er jafnframt leiksstjóri.
Leikritið sem er byggt á Draumi á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare verður sýnt á leiksviðinu í Selskógi en tilefnið er 40 ára afmæli leikfélagsins. Alls eru 15 leikarar í sýningunni og eru það mestu ungir og efnilegir leikarar sem sumir eru að stiga sín fyrstu skref á leiksviði.
Sem fyrr segir er frumsýning í kvöld 21. júlí en sýningar eru eftirfarandi:
Föstudagur 21. júlí. Sýning klukkan 20:00 frumsýning
Sunnudagur 23. júlí Sýning klukkan 17:00
Sunnudagur 23. júlí. Sýning klukkan 20:00
Þriðjudagur 25. júlí. Sýning klukkan 20:00
Sunnudagur 30. júlí. Sýning klukkan 20:00
Miðaverð er 1000 krónur og rétt er að árétta að ekki er hægt að taka við greiðslukortum.