Föstudaginn 4. mars klukkan 20:00 er lokasýning á söngleiknum Rocky Horror sem Leikfélag Akureyrar hefur sýnt fyrir fullu húsi í Hofi frá því í september. Sýningin er nú þegar orðin aðsóknarmesta sýning leikfélagsins frá upphafi og hefur hlotið mikið lof gesta. Nú er því allra síðasta tækifærið til þess að koma og sjá þessa einstöku sýningu. Richard O’Brien skrifaði The Rocky Horror Show árið 1973 og verkið var frumsýnt 19. júní sama ár í London. Sýningin gekk í langan tíma og hefur verið sett upp víða um heim allar götur síðan og alltaf notið mikillar hylli. Árið 1975 var svo gerð kvikmynd eftir söngleiknum; The Rocky Horror Picture Show.
Í Rocky Horror segir frá tveimur þægum og prúðum unglingum, þeim Brad og Janet sem verða fyrir því óláni að bíllinn þeirra bilar úti á þjóðvegi. Eina húsið í nágrenninu er kastali Dr. Frankenstein. Húsbóndi kastalans reynist vera Dr. Frank N Furter sem kemur frá plánetunni Transilvaníu. Dr. Frank N Furter er á kafi í vísindatilraun, er að búa til hinn fullkomna mann; Rocky. Í stað þess að fá hjálp við að gera við bílinn endar hið unga siðsama par innilokað í vægast sagt undarlegu og stórhættulegu ævintýri. Rocky Horror er söngleikur sem fólk um allan heim dáir og elskar. LA er stolt af að sýna loksins þetta frábæra verk þar sem fram koma margir af bestu söngvurum og leikurum landsins.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.leikfelag.is
{mos_fb_discuss:2}