Leikfélag Hveragerðis heldur upp á 60 ára afmæli sitt um þessar mundir. Í tilefni þess mun leikfélagið frumsýna þann 24. febrúar n.k. rokkóperuna Jesus Christ Superstar eftir Tim Rice og Andrew Loyd Webber. Leikstjórar eru Jón Ingi Hákonarson og Laufey Brá Jónsdóttir.
Alls taka 17 leikarar þátt í sýningunni og fjögura manna rokkhljómsveit sér um undirleik. Æfingar hófust 3. janúar og hafa gengið vel. Í aðalhlutverkum eru Hafsteinn Þór Auðunsson, Þorgils Óttar Vilberg Baldursson og Halldóra Rut Bjarnadóttir. Sýningar eru í húsi leikfélagsins, Völundi, að Austurmörk 23.
Önnur sýning verður þann 28. febrúar, en þann dag er einmitt stofnunarafmæli leikfélagsins.
Nánari upplýsingar um sýningar og miðapantanir eru í Tíunni í síma 483-4727.
Sýningar verða:
Frumsýning laugardag 24. febrúar
Afmælissýning miðvikudagur 28. febrúar
3. sýning sunnudagur 4. mars
4. sýning fimmtudagur 8. mars
5. sýning sunnudagur 11. mars
6. sýning miðvikudag 14. mars
7. sýning föstudagur 16. mars
Sýningar hefjast kl 20:30
Miðaverð kr. 2000
Fyrir börn yngri en 12 ára/eldri borgarar kr. 1.500
Hópafsláttur 10 eða fleiri kr. 1.500