Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit frumsýnir söng- og gleðileikinn Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason, föstudaginn 22. febrúar.
Allir þekkja ævintýrið um Jörund sem kom hingað til Íslands og gerðist þar yfirvald nánast upp á sitt eindæmi. Tónlist verksins hefur verið gerð ódauðleg í gegnum tíðina, Þrjú á palli spiluðu og sungu undir sýningunni í fyrstu uppfærslu hennar árið 1970 og í seinni tíð hefur hljómsveitin Papar tekið tónlistina upp á sina arma.

Í Freyvangi eru einnig valdir menn og konur í hverju rúmi. Hermann Arason og Eiríkur Bóasson, gamalreyndir tónlistarmenn, ganga fyrir vöskum hópi hljómlistarfólks. Þá er leikaraliðið ekki síðra. Meðal annarra leika burðarhlutverk Ingólfur Þórsson, Jónsteinn Aðalsteinsson, Stefán Guðlaugsson og Hannes Örn Blandon, en Sigríður Hulda Arnardóttir er aðalleik- og söngkona sýningarinnar. Öll hafa þau langa reynslu með Freyvangsleikhúsinu og öðrum leikfélögum. Alls eru tónlistarmenn og leikarar vel á þriðja tug og þessum stóra hóp stjórnar Saga Jónsdóttir. Þórarinn Blöndal hannaði leikmynd og Ingvar Björnsson og Pétur Skarphéðinsson sáu um hönnun lýsingar.

Upplýsingar um sýningardaga og tíma má finna á heimasíðu Freyvangsleikhússins, www.freyvangur.net, eða í miðasölunni í síma 8575598. Þá er einnig hægt að panta miða í gegnum heimasíðuna.

Mynd: Ingólfur Þórsson og Hannes Örn Blandon í hlutverkum Jörundar og Charlie Brown