ImageSunnudaginn 5. nóvember 2006 kl. 14:00 frumsýnir Möguleikhúsið við Hlemm nýtt barnaleikrit, Höll ævintýranna, eftir Bjarna Ingvarsson.
 
Hér er á ferðinni leiksýning fyrir áhorfendur á aldrinum 2ja til 8 ára, þar sem börnin fá að taka virkan þátt í atburðarásinni og gleyma sér í heimi ævintýranna um stund.

Sagnaþulur nokkur á stefnumót við áhorfendur. Í farteskinu hefur hann sögur og ævintýri sem hann færir í leikrænan búning á einfaldan hátt. Geiturnar þrjár trítla yfir brúna þar sem risinn ógurlegi liggur í leyni, undurfögur höll býr yfir ótal ævintýrum og haltur hani svífur um loftin blá á vængjum ímyndunaraflsins.
 
Leikari sýningarinnar er Bjarni Ingvarsson og leikstjóri Sigurður Sigurjónsson, tónlist er eftir Jónas Þóri og Katrín Þorvaldsdóttir hannaði leikmynd, búninga og leikgerfi.