Ævintýraóperan Hans og Gréta eftir Engelbert Humperdinck verður frumsýnd í Hörpu 25. nóvember nk.

Óperan er byggð á hinu klassíska ævintýri Grimmsbræðra sem fjallar um systkinin Hans og Grétu sem búa í skóginum ásamt foreldrum sínum og lenda í klónum á vondu norninni en tekst með samvinnu og hugrekki að klekkja á henni.

Tónskáldið samdi óperuna við leiktexta systur sinnar, Adelheid Wette, og upphaflega átti verkið að vera fyrir börnin í fjölskyldunni – en þau áttu að flytja það innan veggja heimilisins. Að endingu varð úr heil ópera sem var frumýnd í Weimar í desember árið 1893 og var það sjálfur Richard Strauss sem stjórnaði uppfærslunni. Síðan þá hefur óperan Hans og Gréta iðulega verið sýnd í aðdraganda jólanna.

Hljómsveitarstjóri uppfærslunnar er í höndum Bjarna Frímanns Bjarnasonar sem er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar.

Þórunn Sigþórsdóttir leikstýrir uppfærslunni, Eva Signý Berger hannar leikmynd, um búningahönnun sér María Th. Ólafsdóttir og ljósahönnuður er Jóhann Friðrik Ágústsson.

Flytjendur:

Hans: Arnheiður Eiríksdóttir

Gréta: Jóna Kolbrúnardóttir

Móðirin: Hildigunnur Einarsdóttir

Faðirinn:  Oddur A. Jónsson

Nornin: Dóra Steinunn Ármannsdóttir

Óli Lokbrá: Kristín Einarsdóttir Mantyla

Gradualekór Langholtskirkju

Hljómsveit Íslensku óperunnar

 

Nánaru upplýsingar hér

Miðasala á tix.is og harpa.is