Leikhópurinn GRAL frumsýnir leikverkið Eiðurinn og Eitthvað, fyrsta vekrið sem Gubergur Bergsson skrifar fyrir leiksvið, á leiklistarhátíðinni LÓKAL þann 28. ágúst 2013 í Tjarnarbíói. Aðlögun og leikstjórn er höndum Bergs Þórs Ingólfssonar en leikarar eru Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Erling Jóhannesson og Benedikt Karl Gröndal. Verkið verður síðan sýnt áfram út september.

Skáldið stendur á sviðinu með óstraujaðar buxur og ómótaðar hugmyndir í kollinum um tvö leikverk. Hann kallar fram persónur sem hefja leik. Tveir menn sitja á sjúkrarúmi og velta fyrir sér tilgangi tilverunnar. Kona í hvítum sloppi kemur inn og hristir rassinn. Er þessi kona komin til að prumpa á okkur? …og hver er þessi Ragnheiður Brynjólfsdóttir? Við erum á leiðinni inn í Eitthvað! Innan tíðar gera persónurnar uppreisn gegn skapara sínum  því „uppreisn, mótþrói og óhlýðni eru sameining“ …og skáldskapurinn nær yfirhöndinni. Hversu hátt svífur andinn í leikhúsinu?

Guðbergur Bergsson er eitt helsta núlifandi skáld Íslendinga. Bækur hans hans hafa verið gefnar út á fjölmörgum tungumálum. „Eiðurinn og eitthvað“ er hans fyrsta verk sem er beinlínis ætlað fyrir leikhús.  Óvænt og öðruvísi leiksýning skreytt gullkornum  úr hugarheimi Guðbergs sem oft á tíðum getur verið ólíkindatól og kemur alltaf á óvart.

Grindvíska atvinnuleikhúsið – GRAL var stofnað árið 2007, af leikhúsfólki sem hefur tengsl við Grindavík. Bergur Þór Ingólfsson er leikstjóri og listrænn stjórnandi GRAL en hann hefur getið sér gott orð bæði sem leikari og leikstjóri nú síðast með leikstjórn á Mary Poppins í Borgarleikhúsinu.
GRAL hefur alla tíð einbeitt sér að verkum sem byggja á sögu og umhverfi bæjarins og hlaut fyrir nokkrum árum Grímuverðlaunin fyrir fjölskylduleiksýninguna „Horn á höfði“.

Leikmynd gera Eva Vala Guðjónsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson, búningar og leikgervi eru í höndum Evu Völu Guðjónsdóttur, lýsingu hannað Magnús Arnar Sigurðarson, tónlist semur Halleluwah og um hreyfimyndagerð sá Una Lorenzen.

GRAL mun einnig sýna barnaleikritið Horn á höfði í haust og sýningar hefjast 15. september í Tjarnarbíó. Boðið verður upp á sérstakt GRAL kort – fjögurra miða leikhúskort á kr. 9900 sem innifelur tvo miða miða á Horn á höfði og tvo miða á Eiðinn og eitthvað. Miðasala á www.midi.is