Leikfélag Sauðárkróks hefur hafið æfingar á söngleiknum um hinn eina sanna spýtustrák Gosa. Leikverkið er eftir Brynju Benediktsdóttur með söngvum eftir Þórarinn Eldjárn við tónlist Sigurðar Rúnars Jónssonar. Leikstjórn er í öruggum höndum Þrastar Guðbjartssonar, en leikendur og aðrir aðstandendur sýningarinnar eru ungir og gamlir, reyndir og óreyndir, af ýmsum ættum og úr mörgum héruðum.
Frumsýnt verður laugardaginn 21. október 2006 í félagsheimilinu Bifröst, nánar auglýst síðar.