Leikfélag Keflavíkur frumsýnir Glanna glæp í Latabæ sunundaginn 9. mars í Fumleikhúsinu í Reykjanesbæ. Leikgerðin er eftir þá Magnús Scheving og Ssigurð Sigurjónsson með tónlist Mana Svavarssonar og söngtextum eftir Karl Ágúst Úlfsson. Leikstjóri er Brynja Ýr Júlíusdóttir.

Íþróttaálfurinn hefur kennt öllum bæjarbúum hvað það er mikilvægt að borða íþróttanammi og hreyfa sig reglulega, því þannig nær maður árangri. Íþróttaálfurinn þarf skyndilega að yfirgefa bæinn og þá birtist Rikki ríki í bænum. Hann hlýtur að vera alveg rosalega ríkur…eða hvað? Nei! Rikki ríki er nefnilega Glanni glæpur í dulargervi. Glanni glæpur reynir hvað sem hann getur til að fá bæjarbúa til að hætta að rækta garðana sína, hætta að borða íþróttanammi og hætta að hreyfa sig. Nú þurfa Solla stirða, Halla hrekkjusvín, Siggi sæti, Goggi mega, Nenni níski, Maggi mjói og allir aðrir í Latabæ að sameina krafta sína til að láta Glanna glæp ekki plata sig…í enn eitt skiptið!

Miðasala er á Tix.is.

Leikstjóri: Brynja Ýr Júlíusdóttir
Leikgerð: Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson
Tónlist: Máni Svavarsson
Textahöfundur: Karl Ágúst Úlfsson