Nú standa yfir sýningar hjá Leikfélagi Sauðárkróks á farsanum Flæktur í netinu  eftir Ray Cooney í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð.
Flæktur í Netinu (Með táning í tölvunni) er sjálfstætt framhald leikritsins Með vífið í lúkunum þar sem leigubílstjórinn John Smith barðist við að lifa tvöföldu lífi með tveimur eiginkonum, Mary og Barböru.
Núna 18 árum síðar kynnast dóttir hans úr öðru hjónabandinu og sonur hans úr hinu á netinu og byrja að draga sig saman. Þessu reynir faðir þeirra að afstýra með öllum tiltækum ráðum með dyggri aðstoð vinar síns Stanleys sem hefur sest upp hjá honum og búið þar allan þennan tíma. En John Smith er ekki sá eini sem á sér leyndarmál.
Leikfélag Sauðárkróks setti Með vífið í líkunum upp fyrir 19 árum eða árið 2006. Skemmtilegt er að segja frá því að þeir Guðbrandur J. Guðbrandsson og Árni Jónsson sem leika John og Staney léku þá líka fyrir 19 árum. Elva Björk Guðmundssdóttir lék einnig í sýningunni þá lék hún Barböru en leikur núna Mary.

Frumsýnt var 27. apríl og er 7 sýningum lokið. Síðustu sýningar verða:
Miðvikudagur 7. maí kl. 20:00
Mánudagurinn 12. maí kl. 20:00
Þriðjudagurinn 13. maí kl. 20:00
Fimmtudaginn 15. maí kl. 20:00

Miðasala er á Tix en einnig er hægt að panta í síma 8499434.
Myndir tók Gunnhildur Gísladóttir