Síðasta sýning á Róðaríi
Nú er aðeins ein sýning eftir á leikritinu Róðarí eftir Hrund Ólafsdóttur, sem sýnt er í Tjarnarbíói. Verkið, sem tekur á viðkvæmu málefni, samskiptum innan fjölskyldunnar í skugga áfalla í fortíðinni, hefur verið lofuð jafnt af gagnrýnendum sem almennum...
Vinnslan frumsýnir sitt fyrsta leikverk
Í Strengjum blandar Vinnslan saman listformum og setur upp verk sem fjallar um sjálft vinnuferlið. Hvaðan kemur efniviðurinn? Er einlægnina að finna bakvið tjöldin? Kemur sannleikurinn í ljós? Er sannleikurinn yfir höfuð áhugaverður? Sýningin er frumsýnd í Tjarnarbíói í...
Beint í æð í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 31. október frumsýnir Borgarleikhúsið á stóra sviðinu farsann Beint í æð eftir Ray Cooney. Hilmir Snær Guðnason fer með aðalhlutverkið en leikstjórn er í höndum Halldóru Geirharðsdóttur. Hlátrasköll hafa borist af æfingum síðustu mánuði og er nokkuð víst...
Leikfélag Rangæinga æfir Fullkomið brúðkaup
Leikfélag Rangæinga æfir nú af kappi breska farsann Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í þýðingu Arnar Árnasonar. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson og er þetta í annað skiptið sem hann leikstýrir hjá félaginu en hann leikstýrði einnig Góðverkin kalla á...
Leikfélag Kópavogs frumsýnir Elskhugann
Leikfélag Kópavogs frumsýnir Elskhugann eftir Harold Pinter sunnudaginn 26. okt. kl. 20.00. Harold Pinter er eitt af áhrifamestu leikskáldum samtímans og vann Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2005. Eins og mörg verka hans er Elskhuginn margslungið verk. Það fjallar um...
Aukasýningar á Emil á Sauðárkróki
Uppselt á 4 sýningar í röð - 3 aukasýningar Bætt hefur verið við þremur aukasýningum á Emil í Kattholti en uppselt hefur verið á fimm sýningar af átta. Leikfélag Sauðárkróks þakkar góðar viðtökur. Aukasýningar verða föstudag, laugardag og sunnudag....
Leikfélag Ölfuss frumsýnir Enginn með Steindóri
Leikfélag Ölfuss frumsýnir leikritið Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur laugardagskvöldið 25. október kl. 20:00. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason. Leikarar í sýningunni eru þau Aðalsteinn Jóhannsson, Axel Bergmann Sigurðsson, Árný Leifsdóttir, Benjamín Hallbjörnsson, Erla Dan Jónsdóttir, Hilmar...
Brúðkaup í Fjallabyggð
Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir gamanleikinn Brúðkaup eftir Guðmund Ólafsson föstudaginn 17. október kl. 20.00 í Menningarhúsi Fjallabyggðar, Tjarnarborg. Guðmundur er einnig leikstjóri verksins. Síðasta verk Leikfélags Fjallabyggðar, Stöngin inn, var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2012-13 en það verk var líka...
Rommí á Bíldudal
Leikfélagið Baldur á Bíldudal vaknar úr nokkurra ára dvala núna á laugardag. Þá mun félagið frumsýna ameríska stykkið Rommí. Í aðalhlutverkum eru tveir af burðarásum félagsins í gegnum árin Hannes Friðriksson og Þuríður Sigurmundsdóttir. Bæði hafa þau starfað ötulega...
Hundur í óskilum sýnir Öldina okkar
Félagarnir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson í hljómsveitinni Hundur í Óskilum voru farnir að gæla við þá hugmynd að setja á svið gríðarstórt sjóv með 20 dönsurum og leikurum í tilefni af 20 ára afmæli sveitarinnar. Þeir neyddust hins vegar til að...


