Önnur hlutverk eru í höndum Benedikts Karls Gröndal, Sólveigar Guðmundsdóttur og Péturs Ármannssonar. Auk þess er gert ráð fyrir að fjórir ungir leikarar taki þátt í sýningunni. Leikfélag Akureyrar bendir ungu fólki (14-18 ára) sem vill taka þátt í þessari spennandi uppsetningu á að í tengslum við hana munu fara fram sérstakar áheyrnarprufur. Prufurnar verða laugardaginn 15. nóvember n.k. (í Rýminu), en skráning fer fram á netfanginu midasala@leikfelag.is. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri í síma 4 600 200. |