Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Menningarhúsinu Kviku í Vestmannaeyjum dagana 3. og 4. maí 2014.

Leikfélag Vestmannaeyja býður öllum fundargestum í leikhús á föstudagskvöldinu á sýninguna Don´t stop believing í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.

Tilkynnið þátttöku fyrir 16. apríl.

Fundurinn verður settur laugardagsmorguninn 3. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 4. maí.

Fundargerð aðalfundar 2013 er hér á síðunni undir Bandalagið/Fundir og verður ekki send út.

Skv. lögum Bandalagsins hafa aðeins þau aðildarfélög atkvæðisrétt á aðalfundi sem greitt hafa árgjöldin.

Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2013-2014.

Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum. Frestur til að senda Þjóðleikhúsinu umsóknir rennur út þriðjudaginn 22. apríl. Eyðublöðin eru hér á forsíðunni að ofan til hægri.

Boðið er uppá eftirtalda pakka frá föstudegi til sunnudags:
1.    Eins manns herbergi, 2 nætur með morgunverði og mat á laugardegi kr. 31.000.- (ath. takmarkaður fjöldi herbergja)
2.    Tveggja manna herbergi, 2 nætur með morgunverði og mat á laugardegi 27.000 á mann
3.    Matur á laugardegi og fundarseta án gistingar kr. 9.000 á mann

Gisting og morgunverður verða á Hótel Vestmannaeyjum, Vestmannabraut 28 og Hótel Eyjum,  Bárustíg 2, fundurinn verður í Menningarhúsinu Kviku og máltíðir á laugardegi í Akóges. Athugið að kvöldverður á föstudegi og hádegisverður á sunnudegi eru ekki innifaldir í pakkaverði en tilboð til fundargesta verður á veitingastað á Hótel Vestmannaeyjum og 15% afsláttur af mat og drykk á 900 Grillhúsi, Vestmannabraut 23.

Tilkynnið þátttöku fyrir 16. apríl og takið fram hvern af ofantöldum pökkum þið viljið kaupa. Vinsamlegast greiðið þátttökugjaldið um leið inn á reikning 0334-26-5463, kt. 440169-0239 og látið bankann senda kvittun á netfangið info@leiklist.is