Er kominn tími á ljúfa leikhússtund sem skilur ekkert eftir sig nema skaddaðar hláturtaugar? Freyvangsleikhúsið setur á svið gamanleikritið Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason úr Ljótu hálfvitunum. Leikstjórar eru Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, sem sjálfur er Ljótur hálfviti í hjáverkum.
Í smábænum Gjaldeyri á Ystunöf starfa ofvirk góðgerðarfélög, Dívansklúbburinn, Lóðarís og Kvenfélagið Sverðliljurnar, sem fyllt hafa sjúkrahús bæjarins með stanslausum tækjagjöfum, lækninum til mikillar armæðu. Góðgerðarkapphlaupið stigmagnast og nær hámarki á 100 ára afmæli sjúkrahússins.
Rómantísk, stórundarleg, en umfram allt bráðfyndin atburðarrás með söngvum sem eru mátulega vel frambornir af góðgerðarfélögunum þremur.
Skemmtilegheitin í Freyvangi verða frumsýnd í 10. mars.
Sýningar öll föstudags- og laugardagskvöld í mars og apríl.
Tryggið ykkur miða án tafar á freyvangur@gmail.com – tix.is – sími: 857 5598
Fylgist með lífinu á Gjaldeyri á facebooksíðu Freyvangsleikhússins.