Leikdeild Höfrungs á Þingeyri gerir það ekki endasleppt í leiklistinni. Í fyrra var settt á svið ævintýrið um Línu Langsokk sem sló öll met og var sýnt aftur og aftur. Enn er bætt í því núna er það sjálft ævintýrið um Galdrakarlinn í Oz. Æfingar hafa staðið yfir frá því í lok janúar og nú er komið að lokasprettinum.

Galdrakarlinn í Oz er sérlega viðamikil sýning en þetta er í fyrsta sinn sem þessi leikgerð af verkinu er sýnd innandyra. Já, innandyra. Því áður hefur aðeins Leikhópurinn Lotta sýnt verkið um land allt og að vanda eru sýningar þess frábæra leikhóps utandyra. Höfundur leikgerðar er Ármann Guðmundsson ein aðalsprautan í Ljótu hálfvitunum. Tónlistin er eftir Ljótu hálfvitana auk þess sem hinn vestfirski Guðmundur Hjaltason hefur samið nokkur lög sérstaklega fyrir þessa uppfærslu.

Aðalhutverkið Dórótheu litlu stúlkunnar frá Kansas leikur Gréta Proppé Hjaltadóttir nemandi við Grunnskólann á Þingeyri. Alls taka 16 leikarar þátt í sýningunni og annar eins hópur starfar að tjaldabaki. Það má búast við sannkallaðri töfra stund á Þingeyri næstu misserinn enda hefur sjálfur Galdrakarlinn í Oz tekið sér þar búsetu að minnsta kosti um stundarsakir.

Miðasala hefst á föstudag, 5. mars, og er miðaverð aðeins 2.800.- kr. Miðasölusíminn hjá Galdrakarlinum er 864 2974. Frumsýning á Galdrakarlinum í Oz verður annan laugardag, 14. mars kl.14.00. Önnur sýning verður strax daginn eftir sunnudaginn 15. mars kl.14. Rétt er að geta þess að þrjár sýningar verða um páskana.