Púður og kinnalitaburstar frá Grimas
Burstarnir eru úr mjúku, eftirgefanlegu hrosshári og sérstaklega fínir til að bursta á púður, kinnalit og skyggingar. Burstarnir koma í 4 stærðum; nr. 4 kostar kr. 1.160, nr. 6 kr. 1.500, nr. 8 kr. 2.750 og nr. 10 kr. 3.875.
Minni stærðirnar henta best í kinnalitinn og til að skyggja með en sá stærsti er bestur í púðrið.

Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is

Best er að hreinsa burstana með hárþvottaefni eða handsápu og vatni. Skolið svo vel og hristið og leggið burstana svo flata á klút á meðan þeir þorna. Ekki láta þá þorna standandi uppá endann því þá seytlar bleytan niður í skaftið og skemmir það.

Nr. 4

nr.4

Nr. 6

nr.6

Nr. 8

nr.8

Nr. 10

nr.10