Year: 2011

Fúsi froskagleypir snýr aftur

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur hafið á ný sýningar á  barnaleikritinu  Fúsa Froskagleypi eftir Ole Lund Kirkegaard í Gaflaraleikhúsinu. Sýningin sló í gegn síðasta vetur og þurfti að hætta sýningum fyrir fullu húsi í vor. Verkið er bráðfjörugt barna og fjölskylduleikrit með skemmtilegri tónlist Jóhanns Moravek undir leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Leikritið fjallar á gamansaman hátt um samskipti Fúsa froskagleypis við krakkana og bæjarbúana í Hafnarfirði og hvernig heimsókn Bardínó Sirkussins  til bæjarins breytir miklu í lífi allra. Leikfélag Hafnarfjarðar  fagnar nú í ár 75 ára afmæli sínu og var Fúsi froskagleypir fyrsta sýning  félagsins í  nýju  aðsetri félagsins í Gaflaraleikhúsinu. Miðaverð...

Sjá meira

Einkamál.is aftur á svið

Hugleikur mun þann 7. október nk. hefja á ný sýningar á  leikritinu Einkamál.is eftir Árna Hjartarson. Leikritið var frumsýnt sl. vetur og fékk lofsamlega dóma gagnrýnenda. Þegar sýningum var hætt í vor var uppselt flest sýningarkvöld. Sem fyrr er sýnt í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Einkamál.is er dramatískur gamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki börn? Hann tekur málið auðvitað í sínar hendur, setur auglýsingu á einkamál.is og óskar eftir kynnum við konu sem væri til í að ganga með...

Sjá meira

Umóknareyðublað fyrir NEATA-hátíðina 2012

Aðildarfélög Bandalags ísl. leikfélaga geta sótt um að fara með sýningu á hátíðina. Þau sækja um til Bandalags ísl. leikfélaga fyrir 15. febrúar 2012 á eyðublöðum sem finna má hér. Upptökur af sýningum þurfa að fylgja umsóknum. Ef fleiri en ein sýning sækir um skipar stjórn Bandalagsins valnefnd sem velur sýningu. Hátíðin verður sú sjöunda í röð NEATA-leiklistarhátíða, að þessu sinni haldin í Sønderborg á Suður-Jótlandi dagana 31. júlí til 5. ágúst 2012. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi.   Hvert land má...

Sjá meira

Æfingar hafnar á Eftir lokin

Leikhópurinn SuðSuðVestur æfir nú leikritið Eftir lokin eftir Dennis Kelly, í leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Stefán þýðir einnig verkið ásamt Lilju Nótt Þórarinsdóttur en hún leikur jafnframt annað hlutverk verksins á móti Sveini Ólafi Gunnarssyni. Frumsýnt verður í Tjarnarbíói þann 29. október. Eftir Lokin segir frá tveimur einstaklingum, Markúsi og Lísu, vinnufélögum sem eru innilokuð í sprengjubyrgi eftir kjarnorkuárás.  Samskipti þeirra einkennast af togstreitu og spennu, ástandið er eldfimt og spurningin er: Þau lifðu hörmungarnar af en lifa þau af hvort annað? Leikararnir Lilja Nótt Þórarinsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson hafa getið sér gott orð í leikhúsinu undanfarin ár,...

Sjá meira

Beðið eftir gæsinni í Hafnarfirði og á Akranesi

Leikfélagið Frjálst Orð sýnir einleikinn Beðið eftir gæsinni  eftir Ásgeir Hvítaskáld í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði fimmtudaginn 6. október klukkan 20:00 og sunnudag 9. október klukkan 20:00 og á Akranesi í Gamla Kaupfélaginu laugardaginn 8. október klukkan 20:30. Þessi einleikur var frumfluttur á bæjarhátið Egilsstaða á Ormsteiti í ágúst s.l. við frábærar móttökur. Jón Vigfússon leikur örvæntingafulla veiðimanninn sem hræðist mest af öllu að vera kallaður „einnar gæsar veiðmaður“. En gæsin er slugnin og hefur áhrif á hugarheim veiðimannsins. Sýningin teku um 60 mínútur. Rödd gæsadrottningarinnar leikur Steinunn Rut Friðriksdóttir. Leikfélagið Frjálst Orð er staðsett á Egilsstöðum og hefur staðið að leiksýningum, gefið...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert