Þöggun er saga þriggja skáldkvenna, Ólafar frá Hlöðum, Skáld Rósu og Guðnýjar frá Klömbrum. Verk um konur úr Eyjafirðinum, sem sáu um heimilið, búsýsluna og gerðu það sem ekki mátti, þær skrifuðu!

Vakin er athygli á kvenskáldunum okkar. Bókmenntasagan skipar nefnilega ekki eintóm karlkynsskáld, þeirra minningu hefur hingað til bara verið haldið hærra á lofti. Réttum þessa skekkju af og minnumst allra skáldanna.

Leikritið verður frumsýnt föstudaginn 27. mars.

Ljóðskáldið Guðný Jónsdóttir var fyrst íslenskra kvenna til að fá birt eftir sig veraldlegt ljóð. Sagt er að hún hafi dáið úr sorg eftir að eiginmaður hennar yfirgaf hana og tók börnin frá henni. Hann var yfirgengilega afbrýðisamur vegna skáldagáfu Guðnýjar. Ljóð hennar höfðu gengið manna á milli og varðveist þannig en ekkert af ljóðunum er til í eiginhandarriti. Margt mun hafa glatast af skáldskap skáldkvennanna þriggja og sumt viljandi eyðilagt, því er þetta saga um þöggun.

Leikritið er leikið á staðnum sem sagan gerist, á Möðruvöllum og framleitt af Leikfélagi Hörgdæla.

Listamennirnir og tenging þeirra við verkefnið: Margrét Sverrisdóttir er leikkona að mennt og er nú prestfrú á Möðruvöllum. Sesselía Ólafsdóttir lærði leiklist í London en hún bjó á unglingsárum sínum í Auðbrekku, sama bæ og Guðný Jónsdóttir. Fanney Valsdóttir er fædd og uppalin í Fornhaga, bænum sem Skáld Rósa bjó á. Höfundur og leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson, en Guðný Jónsdóttir er amma langömmu hans. Leikritið er því skrifað í dag, um mann úr fortíðinni sem leitar uppruna síns af annari kynslóð.

Leikritið verður frumsýnt föstudaginn 27. mars og það sýningarfjöldi er takmarkaður.

Miðapantanir eru í síma 666-0170 og 666-0180 alla daga milli 16:00 og 18:00. Við kjósum að hafa ódýrt á sýninguna og miðaverð er því einungis 1500 kr. og frítt er fyrir 14 ára og yngri.