Verkið fjallar um fjögur systkini á miðjum aldri og móður þeirra, sem neyðast til að hittast þegar ein systirin veikist og þarf á hjálp að halda. Samheldni er ekki þeirra sterkasta hlið. Það er því þrautin þyngri að þurfa í sameiningu að ráða fram úr málum. Systkinin telja sig öll hafa fundið sér stað í tilverunni óháð hvert öðru. Stóra spurningin er hver eigi að axla ábyrgð á málum fjölskyldunnar þegar á reynir.
Átökin sem eiga sér stað á sviðinu snúast um mannúð og samstöðu gegn sérhyggju og eigingirni. Í þeirri glímu fara draugar fortíðarinnar á kreik og þar hefur hver sinn djöful að draga.
Fjórar af þekktustu leikkonum okkar stíga á svið í Róðaríi eftir nokkurt hlé frá leikhúsinu en þær eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Guðbjörg Thoroddsen, Halldóra Björnsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir en einnig leikur Kolbeinn Arnbjörnsson í verkinu.