Lýðveldisleikhúsið flytur annan hluta fjölleiksýningarinnar Langstærsti draumurinn í Sundhöllinni við Barónsstíg á Menningarnótt. Þessi hluti ber nafnið Uppflosnað fólk og er eftir Benóný Ægisson. Fyrsti hluti verksins, Þeir stífluðu dalinn minn, var fluttur í innilauginni í Laugardalnum fyrr í mánuðinum. Leikarar í þessum hluta eru Alexía Björg Jóhannesdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir. Sýningar á Uppflosnað fólk verða aðeins fjórar, allar í Sundhöll Reykjavíkur á Menningarnótt 18. ágúst og eru sýningarnar kl. 14:14, 15:15, 18:18 og 19:19 og er aðgangur ókeypis.

Langstærsti draumurinn er fjölleiksýning með blandaðri tækni sem Lýðveldisleikhúsið hyggst setja upp á leikárinu 2007-8. Auk hefðbundinna þátta leiksýningar (leikur, dans, tónlist osfrv.) verður notast við kvikmyndatækni og tölvugrafík. Verkið verður til í nokkrum hlutum og á fyrri stigum verða þessir hlutar kvikmyndaðir en síðan varpað á tjald í lokasýningunni. Það sem skilur þessa vinnu frá venjulegri kvikmyndagerð eða videdólist er að um leiksýningar er að ræða og áhorfendur ætíð viðstaddir. Vatn er grunnþáttur í verkinu og því er í ráði að sýnt verði í sundlaugum og sundhöllum.

 

Árið 1900 bjó innan við tíundi hluti þjóðarinnar á höfuðborgarsvæðinu en nú lætur nærri að tveir af hverjum þremur Íslendingum búi þar. Hvaðan kemur allt þetta fólk? Flosnaði það upp úr sveitunum með breyttum búskaparháttum eða er það að flýja kvótaleysi og álversskort? Og hvað vill það þá fá í staðinn? Uppflosnað fólk fjallar um fjölskyldu sem býr í útjaðri einhvers þéttbýliskjarnans. Móðirin skúrar hjá Orkubúinu og tregar dalinn sinn sem er kominn undir vatn og steinkarlinn sem hvílir á botni lónsins. Sonurinn Bibbi er atvinnulaus þungarokkarari en dóttirin Hekla er að læra verkfræði og að lesa undir próf í burðarþolsfræðum. Einnig kemur þungarokkarinn Vibbi við sögu en hann er vinur Bibba og aðdaándi Heklu. Hvaða drauma á þetta fólk og hvernig gengur því að láta þá í samkeppni við fólk og stofnanir með enn stærri drauma? Í verkinu er gerð tilraun til að svara því.

 

Meðfylgjandi mynd eru úr 1. hluta Langstærsta draumsins sem bar nafnið Þeir stífluðu dalinn minn