Flokkur: Fréttir

Vorið vaknar hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýndi um síðustu helgi rokksöngleikinn Vorið vaknar eftir Steven Sater í leikstjórn Arons Martins Ásgerðarsonar og Elísabetar Skagfjörð. Verkið er byggt á þýsku samnefndu leikriti eftir Frank Wedekind frá árinu 1891 með tónlist eftir Duncan Sheik. Söngleikurinn var frumsýndur árið 2006 á Broadway og hlaut 8 Tony verðlaun, meðal annars verðlaun fyrir besta söngleik ársins. Söngleikurinn fjallar um ungt fólk í uppreisn gegn íhaldssömu samfélagi í uppgötvun sinni á nýjum heimi tilfinninga og frelsis utan skólastofnunnar, með fögrum og hrikalegum afleiðingum. Þessi hópur ungs fólks, sem hefur aðeins hvert annað til leiðsagnar, fetar þann snúna og grýtta...

Sjá meira

Opin æfing hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss æfir um þessar mundir leikritið Grandaveg 7 í litla leikhúsinu við Sigtún. Um er að ræða leikgerð eftir Kjartan Ragnarsson og Sigríði Margréti Guðmundsdóttur byggða á skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur. Í tilefni af Menningarmánuðnum október hjá sveitarfélaginu Árborg bauð leikfélagið upp á opna æfingu 7. október. Gestum og gangandi bauðst að kíkja við, fá sér kaffisopa og fylgjast með því hvernig leikæfing fer fram. Skemmtilegt var fyrir leikhópinn að fá áhorfendur í sal á þessu stigi ferlisins. Stóri viðburður félagsins verður svo að sjálfsögðu frumsýning verksins, en stefnt er að frumsýningu við lok...

Sjá meira

Námskeið í framleiðslu sviðsverka

Fyrsta námskeið Þjóðleikhússins á þessu leikári verður helgað framleiðslu sviðsverka. Það hentar einkar vel stjórnar- og nefndarmeðlimum, sem og öllum þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á verkefnastýringu og framleiðslu leiksýninga. Námskeiðið verður haldið laugardaginn 24. október. Áhersla er lögð á bæði undirbúningsvinnuna sem fram fer áður en æfingar hefjast og eftirfylgni með framleiðsluferlinu allt fram að frumsýningu. Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að efla færni sína í skipulagningu, samskiptum og lausnamiðaðri hugsun. Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir: Hlutverk framleiðandans og framleiðslustjórans Hugmyndavinnu, val á verkefnum og starfsfólki Undirbúningsvinnu: rýmið, höfundarrétt o.fl. Fjármögnun verkefna og fjármálastjórnun Uppsetningu framleiðsluferlis...

Sjá meira

Freyvangsleikhúsið setur á svið Útsynning

Útsynningur er frumsaminn gamanleikur eftir Hjálmar Arinbjarnarson í leikstjórn Jóhönnu S. Ingólfsdóttur sem Frevyangsleikhúsið frumsýnir þ. 9. október. Eingöngu verða sýningar í október. Þetta er fyrsta verkið eftir Hjálmar, í fullri lengd, sem ratar á svið en Hjálmar er engu síður búin að skrifa fjöldann allan af stuttverkum sem hafa farið á hin ýmsu svið, þar á meðal í Borgarleikhúsinu. Hjálmar hefur verið viðriðinn áhugaleiklistina í rúma þrjá áratugi og tekið þátt í yfir tuttugu leikverkum hjá Freyvangsleikhúsinu. Útsynningur er einnig fyrsta verk Jóhönnu í leikstjórn á verki í fullri lengd en hún hefur þó bæði skrifað og leikstýrt...

Sjá meira

Leikfélag Hörgdæla setur upp Hárið

Leikfélag Hörgdæla hefur tekið ákvörðun um að setja upp söngleikinn Hárið á komandi leikári. Áætluð frumsýning er 18. febrúar 2027 og sýnt verður á Melum í Hörgársveit. Pétur Guðjónsson verður leikstjóri sýningarinnar en hann hefur áður unnið með félaginu þegar hann setti upp leikritið Í fylgd með fullorðnum árið 2022 en það naut mikilla vinsælda. Fyrirhugað er að hafa opnar prufur í byrjun október og hvetur félagið áhugasama að fylgjast með á facebooksíðu félagsins þegar nær dregur.  Hárið er kraftmikil sýning sem fagnar lífinu, frelsinu og jafnréttinu. Söngleikurinn fjallar um hóp pólitískt virkra hippa með sítt hár sem lifa...

Sjá meira

Grandavegur 7 hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á verkefni vetrarins. Að þessu sinni verður leikverkið Grandavegur 7 sett upp. Um er að ræða leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundóttur á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson, en hann hefur áður sett upp þrjár sýningar með félaginu, Sólarferð, Kirsuberjagarðinn og Djöflaeyjuna. Verkið er örlagasaga þriggja kynslóða íbúa hússins að Grandavegi 7, séð með augum Fríðu, unglingsstúlku sem sér meira en aðrir sjá. Stefnt er að frumsýningu við lok...

Sjá meira

Píla Pína í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis undirbýr nú af kappi uppsetningu á ævintýrasöngleiknum um litlu ævintýragjörnu músina Pílu Pínu. Hryggjarstykki sýningarinnar eru ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk með lögum eftir Heiðdísi Norðfjörð og Ragnhildi Gísladóttur. Kristján er einmitt eitt af Hveragerðisskáldunum og því vel við hæfi að setja upp þessa sýningu og heiðra verk hans á 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar. Leikstjórn annast Gunnar Gunnsteinsson en hann er öllum hnútum kunnugur þegar kemur að uppsetningum barnaleikrita og þetta er þriðja uppsetning hans með Hvergerðingum, en áður leikstýrði hann Benedikt Búálfi og Ávaxtakörfunni við frábærar undirtektir. Öll tónlist hefur verið sett í nýjan búning og...

Sjá meira

Leikfélagið Lauga hlýtur Menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar

Leikfélagið Lauga hefur hlotið Menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar árið 2026. Í umsögn nefndarinnar segir: Leikfélagið Lauga á mikið hrós skilið fyrir sitt ríkulega framlag til menningarmála í samfélaginu. Með metnaðarfullum, fjölbreyttum og skemmtilegum uppfærslum á leikverkum undanfarin ár hefur félagið auðgað menningarlíf í Snæfellsbæ og skapað ógleymanlegar stundir fyrir íbúa og aðra gesti. Starf félagsins ber vitni um mikla elju, sköpunargáfu og ástríðu fyrir leiklist og er mikilvægur þáttur í að efla menningu og samfélagsanda í sveitarfélaginu. Leikfélagið Lauga hefur sett upp fjórar leiksýningar á jafn mörgum árum og er hópurinn sannarlega vel að því komin að hljóta menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar árið...

Sjá meira

Bransadagur sviðslistanna 20. maí

Bransadagur sviðslistanna 2026 fer fram miðvikudaginn 20. maí frá 9:30 – 16:00 í Þjóðleikhúskjallaranum. Þetta er helsti samkomustaður greinarinnar — dagur til að hittast, ræða og hugsa saman um sviðslistir á Íslandi. Þema dagsins er „Sviðslistir á tímum breyttrar heimsmyndar”. Hvaða sviðslistir viljum við skapa á þessum tímum og fyrir hvern eru þær? Hvernig stöndum við saman á óvissutímum? Boðið verður upp á dagskrá sem er uppfull af hugvekjandi erindum og áhugaverðum umræðum. Sem dæmi má nefna nokkra dagskráliði: „Opnunarávarp ráðherra”: Logi Einarsson menningar- , nýsköpunar- og háskólaráðherra opnar viðburðinn. „Sviðslistir á tímum breyttrar heimsmyndar”: Gréta Kristín Ómarsdóttur á...

Sjá meira

Rocky Horror er Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026

Sýning Leikfélags Húsavíkur á Rocly Horror var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ásdís Þórhallsdóttir tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í lok Bandalagsþings í Reykjanesbæ í kvöld. Halla Rún Tryggvadóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Leikfélags Húsavíkur. Úr umsögn dómnefndar: Dómnefndin er snortin að sjá hversu margar, fjölbreyttar, metnaðarfullar og áhugaverðar sýningar fóru upp innan raða BÍL á liðnum vetri. Þetta er magnað út af fyrir sig og stóð dómnefndin því frammi fyrir ómögulegu verkefni. Sýningin sem þó varð fyrir valinu eftir ítarlegar umræður og vandlega umhugsun vakti athygli af ýmsum ástæðum. Ljóst er að mörg handtök fóru...

Sjá meira

Addamsfjölskyldan hjá Leikflokknum

Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir gamansöngleikinn Addams fjölskyldan um páskana 2026. Leikstjóri og þýðandi er Sigurður Líndal og danshöfundur er Benjamin Di’Ath. Addams fjölskylduna þekkja margir en þetta er engu að síður í fyrsta sinn sem söngleikurinn er sýndur á Íslandi. Söngleikurinn, byggður á persónum The Addams Family eftir Charles Addams, snýst um það þegar Wednesday Addams gerir hið óhugsandi: hún verður ástfangin af alveg hreint „venjulegum“ strák, Lucas Beineke. Hún lætur föður sinn, Gomez, lofa að segja Morticiu móður sinni ekkert – sem er álíka raunhæft og að biðja sprengju um að hvísla. Þegar foreldrum Lucasar er svo boðið...

Sjá meira
Loading

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert