Litli leikklúbburinn frumsýndi farsann Beint í æð eftir Ray Cooney, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði um helgina. Sýningar verða áfram nú í febrúar.
Beint í æð er klassískur farsi eins og þeir gerast bestir: Leyndarmál, misskilningur á misskilning ofan og allt á suðupunkti. Alls koma um 30 manns að uppsetningunni og þar af eru 10 leikarar.
Leikstjóri er Birgitta Birgisdóttir, en þetta er í fyrsta sinn sem hún leikstýrir hjá LL. Birgitta hefur þó áður leikstýrt á Ísafirði, hjá Leikfélagi Menntaskólans á Ísafirði, svo hún er öllum hnútum kunnug í Edinborgarhúsinu. Sýningar standa yfir frá 8.-21. febrúar. Miðasala er á midix.is.


