Year: 2011

Síðustu forvöð á Bót og betrun

Leikfélag Kópavogs hefur undanfarið sýnt fimmhurðafarsann Bót og betrun eftir Michael Cooney við rífandi góðar viðtökur. Aðeins þrjár sýningar eru nú eftir áður en sýningin fer í mánaðarlangt hlé. Uppselt er á sýningar fim. 24. og fös. 25. mars en enn eru lausir miðar sunnudaginn 27. mars. Sýnt er í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi. Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til svika þegar hann missir vinnuna. Svindlið fer hins vegar úr böndunum og Eric kemst að því að það er stundum einfaldara að komast á bætur en af þegar boltinn er einu sinni farinn...

Sjá meira

Leiklist – uppsetningar, sýningar og aðsókn 2009/2010

Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var 416 þúsund á síðasta leikári. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu. Áhorfendum á síðasta leikári fjölgaði um 61 þúsund frá því á leikárinu á undan, eða um 17 af hundraði. Á síðasta leikári voru færðar á fjalirnar 236 uppfærslur á vegum leikhúsa, leikhópa og leikfélaga, sem sýndar voru 2.352 sinnum. Heildarfjöldi gesta leikhúsa, leikhópa og félaga á leikárunum 2000/2001– 2009/2010 er sýndur á meðfylgjandi mynd. Inni í tölum um aðsókn eru gestir á sýningar leikhúsa, leikhópa og leikfélaga í skólum og á...

Sjá meira

Havgird í Gaflaraleikhúsinu 16. og 17. apríl

Havgird, færeyska sýningin sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir og sló eftirminnilega í gegn á NEATA-hátíðinni síðastliðið sumar, er á leið til Íslands! Leikritið verður sýnt í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði 16. og 17. apríl. Sýningin er afar sjónræn þar sem meðal annars er notast við tónlist, trúðleik og brúðuleik til að skapa hversdagslegan töfraheim sem slunginn er gleði og sorg. Leikmyndin er í anda þessa töfraheims, þar sem m.a. er notast við þang til að skapa rétta stemningu. Þetta er einstakt tækifæri til að sjá færeyskt og íslenskt leikhús eins og það gerist best. Havgird var sett upp síðastliðið vor af...

Sjá meira

Heima hjá ömmu á Dalvík

Leikfélag Dalvíkur frumsýnir föstudaginn 25. mars næstkomandi leikverkið Heima hjá ömmu eftir bandaríska leikskáldið Neil Simon, sem á sínum tíma fékk bæði Pulitzer- og Tony verðlaunin fyrir verkið. Sýnt er í Ungó og eru áætlaðar eru 11 sýningar á verkinu. Leikstjóri er Aðalsteinn Bergdal. Sagan gerist í Yonkers, smábæ norðan við New York árið 1942. Amman, frú Kurnitz, er þýskur gyðingur sem rekur sælgætisverslun í bænum. Eldri sonur hennar, Eddi, er komin í heimsókn með tvo stálpaða syni sína. Hann hefur nýlega misst eiginkonu sína og hefur steypt sér í miklar skuldir vegna hjúkrunar á henni. Hann er kominn...

Sjá meira

Kvikmyndin Glæpur og samviska frumsýnd

Ný íslensk kvikmynd, Glæpur og samviska, verður frumsýnd í Valaskjálf á Egilsstöðum föstudaginn 25. mars en hún er unnin í samvinnu við Leikfélag Fljótsdalshéraðs. Þessi mynd hefur verið í vinnslu í fjögur ár og er alfarið tekin á Austurlandi. Leikstjórinn Ásgeir Hvítaskáld hefur þjálfað og ræktað áhugamannaleikara í hlutverkin og notað hið stórbrotna landslag á Austurlandi sem leiksvið. Ásgeir hefur lært kvikmyndagerð í Danmörku og hefur getið sér orð fyrir sterkar sögur. Hann hefur gert 12 heimildar- og stuttmyndir sem hafa fengið viðurkenningar víða um heim. Að tónlistinni í myndinni koma meðal annars Björn Thoroddsen, Margét Eir og Svavar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert