Year: 2011

Kortasala hafin hjá Leikfélagi Akureyrar

Kortasala fyrir nýtt leikár er hafin hjá Leikfélagi Akureyrar og er óhætt að segja að mikið verði í boði í leikhúsinu fyrir Akureyringa í vetur. Leikárið byrjar á að í september verða tvær gestasýningar en í október verða tvær frumsýningar á vegum LA, Svarta kómedían og Íslenski fjárhundurinn – saga þjóðar. Í nóvember verða svo frumsýnd tvö samstarfsverkefni. Næstu vikurnar eru eftirfarandi leikverk á fjölunum hjá LA:Fjalla Eyvindur er gestasýning frá leikhópnum Aldrei óstelandi og verður sýnd í Rýminu 23. og 24. september. Nýdönsk Í nánd verður á fjölum Samkomuhússins helgina 30. sept. til 1. okt. Nýdönsk mætir hér...

Sjá meira

Síðustu sýningar á Tristram og Ísönd

Nú um helgina verða síðustu sýningar á uppsetningu Leikfélagsins Sýna á Tristram og Ísönd í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýnt verður föstudaginn 16., laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. september og hefjast allar sýningar kl. 20. Ekki verða fleiri sýningar þar sem einn leikaranna heldur erlendis í leiklistarnám. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig leikgerðina ásamt Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Sagan af Tristram og Ísönd er ein þekkasta ástarsaga miðalda en hún segir frá riddaranum Tristram, systursyni Markis Englandskonungs, sem fengið er það verkefni að vinna ástir Ísöndar Írlandsprinsessu fyrir hönd frænda síns. Ekki vill þó betur til en svo...

Sjá meira

Leikfélag Ölfuss æfir Himnaríki

Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Ölfuss á hinu bráðskemmtilega gamanleikriti Himnaríki eftir Árna Ibsen. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir verkinu og er það í þriðja sinn sem hann starfar með LÖ en hann leikstýrði tveimur sýningum hjá félaginu árið 2009, Blúndum og blásýru og Manni í mislitum sokkum. Himnaríki verður frumsýnt þann 14. október í Versölum, Þorlákshöfn....

Sjá meira

Gróska 2011

Félag leikrita og handritshöfunda efnir til höfundahátíðar og umræðu um starf og stöðu höfundarins. Lesið verður úr nýjum íslenskum leikverkum eftir fimmtán höfunda. Í hópnum eru bæði reynsluboltar, höfundar sem þekktir eru fyrir ritstörf en einnig leikskáld sem eru að stíga sín fyrstu skref í ritlistinni. Alls munu á þriðja tug leikara taka þátt í lestrinum. Gróska er vetvangur Flh. til þess að vekja athygli á nýrri íslenskri leikritun sem tekst á við samtíma sinn, togstreitu samfélagsins og fortíðina.Gróska vill undirstrika rödd höfundarins og þýðingu höfundarstarfsins. Dagskrá Tjarnarbíói: Fimmtudagur 15/9 kl.19:30Syndafallið – Ragnar ArnaldsFlóttamenn – Hlín AgnardóttirBorgarinnan – Saga...

Sjá meira

Dýnamískt 30 stunda leiklistarnámskeið

Dagana 3.-14. október heldur leikhúslistakonan Pálína Jónsdóttir leiklistarnámskeið þar sem hún kennir  list og tækni leikarans með aðferðum Suzuki, Viewpoint og Composition. Þáttakendur læra líkamlegt æfingakerfi Suzuki leikaraþjálfunarinnar, spunaaðferðir og leikhústungumál Viewpoint aðferðarinnar og Composition sem þjálfar þátttakendur í að setja leikatriði saman. Á námskeiðinu verður unnið með klassíska texta í Suzuki þjálfuninni og í Viewpoint og Composition verður unnið með meistarasögu Karenar Blixen, Gestaboð Babettu. Námskeiðið er haldið í Dómshúsinu við Lindargötu.   Námskeiðið fer fram mánudaga til föstudaga frá kl 17-20. Námskeiðsgjald 20.000 krónurUmsóknarfrestur rennur út 1 október. Skráning hjá pj@talnet.is sími 6966939 Námskeiðið er krefjandi og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert