Burn Paste – Brunasár
kr.2.490
Aðeins 2 eftir á lager
Lýsing
Lýsing
Burn Paste frá Grimas er þykkt og slímkennt efni sem má bera beint á húðina til að búa til ýmsa „brunaeffekta”. Það er hægt að móta það í nokkurn tíma eftir að það er borið á (ca. 5 mín) en það stífnar svo alveg. Varan fæst í 60 ml. túbum.
Til að efnið festi sig vel við húðina er nauðsynlegt að hreinsa hana vel fyrst og passa að hún sé alveg fitufrí. Berið efnið á með spaða og mótið að vild. Notið Grimas Transparent Powder til að minnka glans. Lokið túbunni vel eftir notkun.
Til að ná efninu af húðinni skal skrapa það af með spaða og þvo það sem eftir verður fyrst með köldu vatni en síðan með volgu vatni og sápu.