Öldin okkar er á ákveðinn hátt framhald á Sögu þjóðar sem sýnt var 80 sinnum fyrir fullu húsi á Akureyri og í Borgarleikhúsinu 2012-2013, hlaut þrjár Grímutilnefningar og hlaut eina Grímu. Saga þjóðar var sýnd á RÚV nú á nýársdag. Þar fóru þeir félagar Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson á hundavaði í gegnum Íslandssöguna en skildu þó eftir smábút frá aldamótum 2000 fram á okkar dag. Í Öldinni okkar ljúka þeir loks verkinu með því að spóla sig í tali og tónum í gegnum samtímasöguna, ris og fall fjármálakerfisins og ýmsa gjörninga sem sett hafa svip á hina viðburðaríku 21. öld á Íslandi. Frábær skemmtun með helstu tvenndarleikurum landsins!
Aðstandendur Höfundur: Hundur í óskilum | leikstjóri: Ágústa Skúladóttir |Tónlist: Hundur í óskilum | Leikmynd og búningar: Axel Hallkell Jóhannesson | Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson | Leikarar: Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur G.Stephensen.