Helgina 15. og 16. mars stendur Þjóðleikhúsið fyrir námskeiðum í sýningarstjórnun annars vegar og tækni leikhússins hins vegar. Námskeiðin verða kennd af sýningarstjórum og tæknimönnum hússins og verða kennd í Þjóðleikhúsinu.
Skráning er á vef Þjóðleikhússins.  Nánar um námskeiðin:

Sýningastjóranámskeið

Laugardaginn 15. Mars kl. 09:30 – 15:00 og sunnudaginn 16. Mars kl. 09:30 – 15:00
Námskeiðið fer fram í Þjóðleikhúsinu. Fjöldi nemenda takmarkast við 15 manns.  Verð: 28.000

Námskeið sem hentar vel fyrir nefndarmeðlimi leikfélaga sem og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á verkefna- og sýningarstjórnun og efla færni sína í skipulagi, samskiptum og lausnamiðaðri hugsun í lifandi sviðslistum.

Hvað gerir sýningarstjóri? Þetta námskeið veitir innsýn í hlutverk og ábyrgð framleiðslustjóra og sýningarstjóra í leikhúsi og útskýrir hvernig þau tryggja að ferlið sé samstillt og gangi hnökralaust.

  • Skipulag og framkvæmd sýninga: Farið verður í gegnum skipulag og framkvæmd sýninga á öllum stigum framleiðsluferilsins, frá undirbúningi æfinga til loka sýningar.
  • Samskipti og samstarf: Hvernig á að eiga árangursrík samskipti við leikstjóra, leikara, tæknifólk og aðra í skapandi teymi.
  • Notkun handrits og verkfæra: Lært um notkun handrits og annarra verkfæra sem sýningarstjóri notar til að halda utan um æfingar og sýningar.
  • Að takast á við óvæntar aðstæður: Námskeiðið útskýrir hvernig sýningarstjórar eru lykilpersonur í að leysa óvænt vandamál á sviði eða í æfingum og hvernig á að bregðast við breytingum eða óvæntum atvikum á sýningum eða æfingum.
  • Tæknileg og skapandi samvinna: Farið verður í hvernig sýningarstjóri þarf að hafa yfirsýn yfir tæknilega og skapandi þætti sýningarinnar, svo sem lýsingu, hljóð, leikmynd og búninga, og tryggja að þau komi saman á réttum tíma.

Kennarar eru sýningarstjórar Þjóðleikhússins.

Tækninámskeið – Ljós og hljóð

Laugardaginn 15. mars  – Ljós:
09:30 – 12:30 og 13:30-15:00

Sunnudaginn 16. mars  – Hljóð:
09:30 – 12:30 og 13:30 -15:00

Námskeiðin fara fram í Þjóðleikhússins. Fjöldi nemenda takmarkast við 15 manns. Verð: 28.000

Námskeiðið er ætlað ljósa og hljóðmönnum áhugaleikhúsa /  framhaldsskólaleikfélaga og þeirra sem vinna með ljós/hljóð á öðrum vettvangi.
Þátttakendur þurfa að hafa náð 16-17 ára aldri og helst að hafa eitthvað fengist við ljósa eða hljóðvinnu áður. Námskeiðið fer fram í Þjóðleikhúsinu og leiðbeinendur eru tæknimenn Þjóðleikhússins.

Ljósanámskeið:
Verkfærin / ljósin Hverskonar ljós er maður að vinna með og hvernig notar maður þau. Ljósmagn, skerpa, vinklar, ofl.
Litir og noktun þeirra: Hvaða hughrif þeir búa til ofl. varðandi litanoktum
Notkun filtera.  LED ljós / ekki LED ljós?
Vinnuferlið:  Á hverju byrjar maður? (Grunnur).
Hvert sækir maður innblástur og hvernig styður maður við verkið og eykur áhrif á áhorfendur.
Samstarf við listræna stjórnendur

Hljóðnámskeið:
Hvað er hljóð, hvernig ferðast það um rými og hvernig getur maður nýtt sér það í praktík?
Uppstilling hljóðkerfa, uppmögnun og þráðlaust hljóð. (Þráðlausir hljóðnemar og in-ear)
Hljóðvinnsla fyrir lifandi viðburði, Q-lab, hljóðeffektar, forritun mixera  og samtenging tækja. (show control)
Hvert sækir maður innblástur og hvernig styður maður við verkið og eykur áhrif á áhorfendur.
Samstarf við listræna stjórnendur