Skólanefndarfundur: 08.10.2024
Staður: Zoom
Fundarmenn:
Hrefna Friðriksdóttir, Gísli Björn Heimisson, Hörður Sigurðarson, Jónheiður Ísleifsdóttir, F.Elli Hafliðason, Guðfinna Gunnarsdóttir
Fundargerð:
- Elli fór yfir starfsemina síðasta sumar. Gekk vel fyrir utan óhapp nemanda sem kostaði sjúkrahúsferð. Busun gekk vel og var til fyrirmyndar. Nokkrar kvartanir vegna fæðis aðallega að ekki hafi alltaf verið salat í boði. Óskað eftir að matseðill sé birtur fyrirfram. Ein kvörtun vegna óþrifnaðar i sundlaug. Einnig rætt um mörk og greiningar nemenda og ýmislegt því tengt.
- Búið er að festa tímann 21.-29. júní fyrir skólann næsta sumar. Hugmynd frá Ella að reyna að festa þennan tíma (þriðju vikuna í júní) til frambúðar.
- Skólastýri heyra í Ágústu og Karli Ágústi með Leiklist II og Leikritun II næsta sumar. Rætt laust og fast um hugmyndir að þriðja námskeiði og ýmis nöfn og námskeiðshugmyndir ræddar.
- Förðunarnámskeið. Stungið upp á Ástu Hafþórsdóttur. Önnur nöfn komu upp s.s. Ninna Karla og Ragna Fossberg. Hörður heyrir í Ástu.
Fleira ekki gert. Fundargerð ritaði Hörður