Allir á svið í Frumleikhúsinu!
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir á föstudaginn farsann Allir á svið, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson sem hefur áratuga reynslu í leiklist. Farsinn Allir á svið er oft kallaður Drottning farsana enda er hér um að...
Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga 2024
Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga árið 2024 er komið út. Í því eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi áhugaleikfélaganna á síðasta leikári auk svipmynda úr sýningum og annars efnis. Ársritið má skoða hér og/eða hlaða því...
Listin að lifa í Litla leikhúsinu við Sigtún
Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur föstudaginn 25. október. Leikstjóri er Jónheiður Ísleifsdóttir. Sýningin fjallar um vinina Dúu, Duddu og Didda og er þeim fylgt gegnum lífið nánast frá vöggu til grafar með öllu...
Leikfélag Sauðárkróks sýnir Ávaxtakörfuna
Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Ávaxtakörfuna eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur í dag, þriðjudag 15. okt. Höfundur tónlistar er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Leikstjóri er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir. Æft hefur verið síðastliðnar sex vikur og hefur æfingatímabilið gengið mjög vel. 9 leikarar leika...
Æfingar á haustverki Leikfélags Selfoss á fullu
Leikfélag Selfoss hefur nú heldur betur slegið í klárinn eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara síðustu tvö ár vegna framkvæmda við leikhúsið. Haustsýning leikfélagsins er leikritið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Jónheiðar Ísleifsdóttur....
Lokað föstudag 13. sept.
Lokað verður á Þjónustumiðstöð föstudaginn 13. september vegna fundar NEATA samtakanna í Noregi. Vefverslun Leikbúðarinnar ávallt...
Leiklistarnámskeið fyrir nýliða
Leikfélag Kópavogs býður upp á leiklistarnámskeið í byrjun september. Leiklistarnámskeiðið er ætlað nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í...
Opnunartímar í sumar
Fastur opnunartími í Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga og Leikhúsbúð verður 9,00-12.00 til og með 30. september. Athugið að vefverslun Leikhúsbúðarinnar er áfram opin allan sólarhringinn. Afgreiðsla pantana gæti þó tekið ögn lengri tíma en venjulega. Fyrirspurnir má senda á...
Leiklistarskóla BÍL slitið í 27. sinn
Leiklistarskóla BÍL var slitið í 27. sinn sunnudaginn 23. júní að Reykjum í Hrútafirði. 52 nemendur luku þar námí á fjórum námskeiðum; Leiklist I, Leikritun I, Leikstjórn IV og Sérnámskeiði fyrir leikara. Daginn áður fór fram ógurleg leikhúsveisla þar...
Þjóðleikhúsið setur á laggirnar nýjan leikhússkóla
Þjóðleikhúsið hefur sett á laggirnar nýjan leikhússkóla, sem býður upp á einstakt tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 18-22 ára, með brennandi áhuga á leikhúsi, til að kynna sér leikhús frá ólíkum hliðum og efla færni sína og þekkingu....


