Leikfélag Húsavíkur frumsýnir söngleikinn Rocky Horror laugardaginn 14. mars kl. 16:00 . Richard O’Brien er höfundur verksins og þýðingin sem LH notast við var í höndum Braga Valdimars Skúlasonar. Við fengum til liðs við okkur leikstjórann Eyvind Karlsson. Hann mætti norður um miðjan janúar og ganga æfingar og allur undirbúningur mjög vel.
The Rocky Horror Picture Show er verk með kraftmikilli tónlist og skrautlegum persónum sem fólk þekkir vel. Sýningin skartar tilkomumikilli sviðsmynd, glæsilegri lýsingu, svakalegum búningum, meiriháttar förðun, glannalegum atriðum og leikarahópi sem samanstendur af mörgum nýjum þátttakendum í bland við reyndara fólk. Þá ber að nefna afar vel mannaða hljómsveit sem sér um tónlistarflutning á sviðinu.
Fosshótel Húsavík verður með leikhústilboð í samvinnu við LH svo fólki er ekkert að vanbúnaði að drífa sig norður í menningarferð.
Miðasala er á tix.is en einnig hægt að hafa samband í síma 8941129 og á netfangið leikfelaghusavikur9@gmail.com. Einnig er hægt að fylgjast með starfinu á samfélagsmiðlunum okkar.


