Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu á Þeim glataða. Hún verður  sunnudaginn 25. mars kl. 20. Sá glataði nefnist nýtt íslenskt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, leikstjóra og leikhópinn í leikstjórn Ágústu Skúladóttur sem Hugleikur frumsýndi í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9 í seinasta mánuði.

Að þessu sinni fæst Hugleikur við eitt af grundvallarritum vestrænnar menningar, sjálfa Biblíuna. Megin efniviðurinn eru dæmisögur Jesú í Nýja Testamentinu, bæði þessar alþekktu um glataða soninn og miskunnsama Samverjann en einnig aðrar minna þekktar sem gjarnan fjalla um peninga og kallast þannig með áþreifanlegum hætti á við samtímann. Ágústa sér um að þræða þessar perlur upp á band með leikhópnum sem inniheldur bæði gamlar og gljáfægðar Hugleikskanónur og ferska og ilmandi nýliða. Líkt og oft áður í sýningum Hugleiks er tónlistin fyrirferðarmikil, en tónlistarstjóri er Þorgeir Tryggvason.

Allar nánari upplýsingar um uppsetninguna og leikfélagið má nálgast á vefnum www.hugleikur.is en þar er einnig tekið við miðapöntunum. Almennt miðaverð er 2.000 kr. en 1.500 kr. fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja.

{mos_fb_discuss:2}