Listaverkið er bráðfyndinn gamanleikur með heimspekilegum undirtóni um þrjá góða vini og alvarlega uppákomu í samskiptum þeirra. Húðsjúkdómalæknirinn Serge hefur keypt sér fokdýrt málverk sem sýnir ekkert annað en hvítan flöt. Við það getur vinur hans Mark bara alls ekki sætt sig og eru fyrir því ýmsar ástæður. Hvorum þeirra á þriðji vinurinn, Ivan, eiginlega að vera sammála? Fyrr en varir er fjandinn laus.
„Prump… hvítt prump, það er orðið yfir það!“
Leikstjóri sýningarinnar er Guðjón Pedersen, Guðjón Ketilsson gerir leikmynd og sér jafnframt um búninga ásamt Leilu Arge, lýsing er í höndum Lárusar Björnssonar og þýðingin er eftir Pétur Gunnarsson.
{mos_fb_discuss:2}