Ný námskeið á nýju ári.
Námskeiðin eru ætluð þeim sem vilja skemmta sér, losa um hömlur og fá útrás fyrir sköpunargleðina í spuna og leik. Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur það að markmiði að gefa fullorðnu fólki tækifæri til að kynnast leikrænni tjáningu í afslöppuðu og öruggu umhverfi. Leiklistarnámskeiðið býður uppá skapandi leiklist og sjálfstyrkingu. Meðal annars verður farið í:
- Spuna
- Stanisslavski tækni
- Aðferðir Agusto Boal (þáttökuleikhús)
- Frásagnatækni
- Líkamsleikhús
- Trúðatækni
- Núvitund í leiklist
Allir hafa þörf fyrir að tjá sig og með því að efla leikræna hæfileika sína með skemmtilegum æfingum sem opna fyrir sköpunarflæði og ímyndunarafl fær fólk tækifæri til að þroska sjálfsöryggi á skapandi hátt. Námskeiðið hentar því öllum sem vilja tjá sig af öryggi hvort sem er í lífinu eða í leik.
Námskeiðið er ætlað 17 ára og eldri og er í Listdansskólanum Engjateigi 1, 105 Reykjavík. Námskeiðið er á þriðjudögum 20.15 -22.15 og hefst þriðjudaginn 26. janúar. Hægt er að hafa samband á netfangið iceolof@hotmail.com eða í síma; 845-8858.
Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur verið starfandi í rúm 7 ár og fjöldi manns hefur komið á námskeið og sagt að námskeiðið hafi hjálpað þeim bæði persónulega og í starfi. „Stórkostleg upplifun & frábær skemmtun“, „Frábært að fá að gera eitthvað algjörlega nýtt, krefjandi og skapandi“ er meðal annars það sem nemendur hafa sagt um námskeiðið. Ólöf Sverrisdóttir og Ólafur Guðmundsson leikarar og leiklistarkennarar stofnuðu skólann á sínum tíma en þau hafa bæði mikla reynslu af því að kenna. „Okkur fannst hreinlega vanta svona námskeið þar sem fullorðnir fengju tækifæri til að læra leiklist og í leiðinni að þroska sig og efla sjálfstraust í gegnum skemmtilegar leiklistaræfingar.“
Fleiri umsagnir:
„Ég mæli SKO 100% með námskeiðinu – það er uppbyggjandi og svo svakalega skemmtilegt – mikið hlegið og leikið sér.“
„Gjörsamlega frábær námskeið sem efla sjálfstraust og auðvelda manni að vera maður sjálfur í öllum aðstæðum. Kennarar til fyrirmyndar.“