Í febrúar stendur Leikfélag Kópavogs fyrir leiklistarnámskeiði sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár.
Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í 6 skipti og aldurstakmark er 21 árs. Námskeiðið fer fram í Leikhúsinu, Funalind 2 og námskeiðsgjald er 10.000 kr. fyrir utanfélagsmenn en skráðir félagsmenn greiða 2.500 kr. Nánari upplýsingar um námskeiðið er hægt að fá á vef LK.