Fréttir · 3. nóvember 2026

Kvennaráð á Eyrarbakka

Leikfélag Eyrarbakka frumsýndi leikritið Kvennaráð eftir Sellu Páls í Rauðahúsinu á Eyrarbakka 30. október síðastliðinn..
Eftir lát eiginmanns síns ákveður ekkjan Þorgerður að stíga loksins út úr skugga hans, hrista upp í tilverunni og taka stjórnina í eigin hendur. Sú frelsisþrá mætir harðri mótspyrnu hjá framagjarnri og stjórnsamri dóttur hennar, Birnu, sem er stöðugt á hlaupum. Í stað þess að gefast upp finnur Þorgerður dýrmætan bandamann og óvæntan sálufélaga í kínversk-íslensku húshjálpinni Mei. Verkið fjallar um uppgjör mæðgna, sjálfstæði, kynslóðamun og vináttu sem kviknar á ólíklegustu stöðum.

Næstu sýningar eru 7. nóv. kl. 15, 8. nóv. kl. 15, 13. nóv. kl. 20 og síðasta sýning er 15. nóv. kl. 15. Miðasala er á Tix.is. Kvennaráð var frumkynnt með leiklestri á vegum hópsins Leikhúslistakonur 50+ í Hannesarholti árið 2018 undir leikstjórn Sveins Einarssonar, en er nú í fyrsta sinn sett á svið.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins og einnig má hafa samband í tölvupósti á leikfelageyrarbakka@gmail.com.