Sviðslistaverkið Kæra manneskja verður frumsýnt í Tjarnarbíói föstudaginn 1. september kl. 20:30.
Hefur þú einhvern tíma tekið eftir því hvernig tilveran gengur hring eftir hring? Fyrst ertu barn, svo eignast þú kannski börn, sem eignast börn. Þú andar inn, andar út, inn, út, sífelldar endurtekningar, stórar sem smáar, hring eftir hring. Þú þarft súrefni til að lifa, en að lokum verður úr þér allur vindur. Af moldu ertu komin, að moldu skalt þú aftur verða. Þú ert nátengd náttúrunni og hringrásin þín og hennar eru samstilltar. Þú þarfnast hennar. Allt hefur áhrif, kæra manneskja, og vonandi munu þessar hugleiðingar fá þig til þess að sjá stöðu þína í hringrás lífsins í nýju ljósi.
Kæra manneskja er nýtt dansverk unnið undir handleiðslu Valgerðar Rúnarsdóttur danshöfundar en verkið er skapað í nánu samstarfi við hóp lisamanna. Hópinn skipa auk Valgerðar: Áskell Harðarson tónlistarmaður, Ragnar Ísleifur Bragason sviðslistamaður, Ragnheiður Maísól Sturludóttir myndlistakona, Sigrún Huld Skúladóttir leikkona/dramatúrg, Snædís Lilja Ingadóttir danslistakona og Védís Kjartansdóttir danslistakona.