Leikfélag Hörgdæla æfir af fullum krafti leiksýninguna Í fylgd með fullorðnum í húsnæði félagsins að Melum þessa dagana. Í fylgd með fullorðnum er lífleg sýning sem segir frá gleði og sorgum persóna sem finna má í textum Bjartmars Guðlaugssonar og skipar tónlist hans ríkan sess í sýningunni. Leikritið er skrifað af Pétri Guðjónssyni sem jafnframt leikstýrir verkinu.
Frumsýning verður fimmtudaginn 10. mars en uppselt er á fyrstu þrjár sýningarnar.
Verkið byggir á lögum og textum Bjartmars Guðlaugssonar eins og áður sagði og er um alheimsfrumflutning að ræða. Lög Bjartmars eru mörgum kunn og Hörgdælir lofa miklu fjöri og skemmtun. 17 leikarar ásamt hljómsveit munu stíga á svið, sumir alvanir en aðrir að stíga sín fyrstu skref. Þar fyrir utan er fjöldi manns sem kemur að uppsetningunni.
Sýningar eru fyrirhugaðar í mars og apríl. Leikfélag Hörgdæla og fyrirrennar þess hafa sett upp upp leiksýningar að Melum um áratugaskeið við góðan orðstír. Miðasala er á Tix.is. Nánari upplýsingar er á Facebooksíðu  Leikfélags Hörgdæla.