Stjórnarfundur: 03.05.2026 kl. 10:00  Staður: Park Inn hótelið og Zoom

Fundarmenn:

Ólöf Þórðardóttir, Hanna Margrét Kristleifsdóttir, Sigrún Tryggvadóttir, Brynhildur Sveinsdóttir, Halla Rún Tryggvadóttir, Anna María Hjálmarsdóttir, Bjarklind Þór, Daði Freyr Þorgeirsson, Fanney Valsdóttir, Úlfhildur Örnólfsdóttir, Hörður Sigurðarson, frkv.stj.


Fundargerð:

  1. Formaður býður nýja stjórnarmenn velkomna, þær Brynhildi Sveinsdóttur og Höllu Rún Tryggvadóttur.
  2. Sigrún Tryggvadóttir skipuð varaformaður og Halla Rún ritari
  3. Úthlutunarfundur ákveðinn sun. 14. júni kl. 10.00 á Þjónustumiðstöð og Zoom ef einhver þarf. Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi kl. 16.00 10. júní
  4. Leikfélag Flateyrar varð fyrir því að upptaka af sýningu eyðilagðist. Stjórn þarf að kanna málið nánar og afla frekari upplýsinga áður en tekin verður afstaða til umsóknar.
  5. Leikfélag Vestmannaeyinga bauð til Bandalagsþings 7. maí 2027. Samþykkt með þeim fyrivrara að gistiaðstaða sé ásættanleg hvað varðar aðbúnað og verð. Stað- og dagsetning verður kjölfarið auglýst í félagapósti svo leikfélögin hafi fyrirvara vegna breyttrar tímasetningar. Óskað verður eftir að félögi kvitti fyrir móttöku félagapósts um það.
  6. Í kjölfar athugasemda á aðalfundi verða fundargerðir stjórnar opnaðar leikfélögunum á vefnum.

Fleira ekki gert.
Fundargerð ritaði Hörður