Skólanefndarfundur: 10.11.2026
Staður: Kleppsmýrarvegi 8
Fundarmenn:
Hrefna Friðriksdóttir, Gísli Björn Heimisson, Hörður Sigurðarson, Jónheiður Ísleifsdóttir, F.Elli Hafliðason, Guðfinna Gunnarsdóttir
Fundargerð:
Fundur settur.
- Elli fór yfir gang mála í sumar sem leið. Flest gekk vonum framar frá sjónarhóli skólastýra.
- Helst kvartað yfir matnum. Skólastýri taka að vissu leyti undir það að maturinn var einhæfur. Sigurður frá UMFÍ óskar eftir matseðli frá okkur. Aðeins kvartað undan loftgæðum.
- Almenn ánægja með námskeiðin. Aðeins skiptar skoðanir með áherslur í Leikritun.
- Leiksmiðja þar sem höfundar unnu tvo tíma með leikurum úr hinun bekkjunum lukkaðist vel.
- Skólinn næsta ár verður 19. – 27. júní. Hörður staðfestir tímasetningu við Sigurð.
- Rætt um námskrá 2027
- Borðleggjandi að Leiklist II verði í boði. Ágústa fyrsti kostur, Gríma annar.
- Leikstjórnarnámskeið komið á tíma. Leikstjjórn I var síðast 2021. Tölum fyrst við Rúnar Guðbrandsson. Rætt um valkost 2 og Agnes Wild kom upp ásamt Sigurði Líndal og Grétu Kristínu Ómarsdóttur.
Rúnar hefur staðfest símlega. Hörður óskar eftir skriflegri staðfestingu. - Sérnámskeið. Minnst á Ásdísi Rós Alexandersdóttur og Eyvind Karlsson.
- Framhald á Complete Vocal. Elli heyrir í Þórhildi.
- 30 ára afmæli Leiklistarskóla BÍL Samþykkt á síðasta aðalfundi að halda málþing um skólann. Hugmynd að slá þessu saman og jafnvel halda stuttverkahátíð a la lokadag í tengslum við málþingið og ljúka með fögnuði.
- Hörður athugar hvort Ásta Hafþórsdóttir getur komið á fund. Ræða annarsvegar hugmyndir um förðunarnámskeið á næsta ári og einnig hvaða hugmyndir hún hefur um hvernig hægt væri að koma við förðun og gervagerð í skólanum.
- Næsti fundur eftir áramót.
Fundargerð ritaði Hörður
